upplýsingar úr Samherjaskjölunum.
Virðulegi forseti. Öll erum við hugsi yfir því ástandi sem við erum að ganga í gegnum núna hvað varðar hið svokallaða Samherjamál. Ég hef t.d. verið að skoða Wikileaks-skjölin í málinu. Þar rakst ég m.a. á tölvupóstssamskipti milli einhvers konar umboðsmanns eða útgerðaraðila í samstarfi við Samherja í Póllandi við yfirmenn Samherja, þar með talið lögfræðing fyrirtækisins. Þessi tölvupóstssamskipti áttu sér stað í maí 2016. Þar kemur fram að Samherji hefur undir höndum drög að viljayfirlýsingu eða samningi um að efla viðskiptasamband Íslands og Póllands á sviði fiskveiða, fiskeldis og líftækni. Af hverju er Samherji með í sínum höndum drög að slíkum milliríkjasamningi í sjávarútvegi milli Íslands og Póllands þar sem fyrirtækið er þungt inni með útgerðarrekstur og sölu sjávarafurða? Þeir eru með þennan samning í höndum tveimur mánuðum áður en hann var síðan undirritaður formlega af Gunnari Braga Sveinssyni, þáverandi sjávarútvegsráðherra, fyrir hönd Íslands í júlí 2016.
Telur hæstv. forsætisráðherra að þetta sé ekki mjög alvarlegt? Hér eru íslensk stjórnvöld að gera milliríkjasamning og hann er í vinnslu í ráðuneytinu og Samherji er með pappírana undir höndum og veit hvað er í undirbúningi. Er þetta ekki spilling? Hvernig stendur á því að Samherji, sennilegast eitt íslenskra fyrirtækja, var með þetta skjal í höndunum meðan það var í vinnslu í ráðuneytinu eða tíðkast það bara í íslenskri stjórnsýslu að innherjar í atvinnulífinu hafi aðgang að skjölum sem eru í vinnslu, kannski ekki bara milliríkjasamningum heldur líka reglugerðum og lögum?
Hitt er svo annað að ég fæ ekki betur séð en að Samherji hafi á þessum tíma verið að nota þessi drög að samstarfssamningi í sjávarútvegi milli Íslands og Póllands til að reyna að koma á hliðstæðum samningi milli Namibíu og Póllands varðandi fiskrannsóknir. Tilgangurinn með því hafi verið að skapa trúverðugleika og rétta ímynd kringum veiðar á umtalsverðum aflaheimildum sem Pólland hafði í lögsögu Namibíu og Samherji hefur augljóslega tekið þátt í og jafnvel séð um. Þar benda Wikileaks-skjölin á að menn hafi höndlað með greiðslur á (Forseti hringir.) milljónum bandaríkjadollara. Hefur forsætisráðherra skoðað þessi skjöl? Hafa íslensk stjórnvöld yfir höfuð litið á þau? (Forseti hringir.) Þetta er opið allri heimsbyggðinni. Það þarf ekki nema eina tölvu til að sjá.