150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

upplýsingar úr Samherjaskjölunum.

[10:41]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Mér er augljóslega ekki kunnugt um af hverju Samherji var með í sinni vörslu drög að slíkum samningi sem reyndar er alvanalegt að gera milli ríkja. Ég þekki nægjanlega mikið til slíks verklags að ég veit að við undirbúning slíkra samninga eru þeir oft kynntir heildarsamtökum á sviði atvinnugreina. En nákvæmlega hvernig þetta vill til þekki ég augljóslega ekki, enda var ég ekki starfandi sjávarútvegsráðherra þá. Mér er til efs að sá starfandi sjávarútvegsráðherra sem hv. þingmaður nefndi hafi nokkrar skýringar á því heldur.

Hins vegar er það svo, af því að hv. þingmaður gerir því skóna að ég eigi að standa í sjálfstæðri rannsókn á þessu máli, að þetta mál er í ferli. Þetta mál er í ferli hjá héraðssaksóknara sem er að rannsaka þau mál sem hafa komið upp, m.a. vegna ítarlegra fréttaskýringa Kveiks og Al Jazeera um meintar mútugreiðslur Samherja til stjórnvalda í Namibíu. Auðvitað er þetta mál í því ferli sem það á að vera hjá héraðssaksóknara og hjá skattrannsóknarstjóra og ég treysti þessum stofnunum til að sinna því hlutverki sem þeim er skylt að sinna. Ég treysti þeim til að rannsaka þessi mál ofan í kjölinn. Það hefur margítrekað komið fram í mínu máli en augljóslega, herra forseti, hef ég ekki þekkingu á því nákvæmlega af hverju Samherji hafði undir höndum drög að þeim samningi sem gerður var árið 2016.