leyfi til hvalveiða.
Herra forseti. Stórhveli taka að meðaltali til sín 33 tonn af CO². Það jafngildir um 1.500 fullvöxnum trjám. Ríkisstjórn Vinstri grænna, með hæstv. sjávarútvegsráðherra í broddi fylkingar, fór í framlengingu á veiðiheimildum á hval þannig að til ársins 2023 hefur ríkisstjórnin heimilað dráp á 1.045 langreyðum og 1.085 hrefnum. Bara hluti langreyðanna upp á 1.045 dýr jafngildir tæpum 35.000 tonnum af CO². Ég hlýt því að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún sem oddviti ríkisstjórnarinnar og með þá stefnu Vinstri grænna að vilja hætta hvalveiðum muni ekki beita sér fyrir því að hætta veiðum og drápum á hvölum núna þegar til viðbótar við dýraverndunarsjónarmiðin, þau mikilvægu sjónarmið, eru komin dýrmæt loftslagsrök.
Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra er: Mun hún taka þetta upp innan ríkisstjórnar og mun hún afturkalla leyfið? Mun hún beita sér fyrir því að það verði hvalveiðibann af hálfu Íslands? Það yrði jafnframt að mínu mati dýrmæt yfirlýsing fyrir ekki síst ímynd Íslands á þessum tímum.