leyfi til hvalveiða.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni sem spyr hér um hvalveiðar og hvort forsætisráðherra hyggist afturkalla leyfi til hvalveiða. Hv. þingmaður þekkir það að sú ákvörðun hvílir að sjálfsögðu á herðum hæstv. sjávarútvegsráðherra. Hann fer með slíkar leyfisveitingar. Við höfum auðvitað áður farið yfir það hver rök hæstv. ráðherra voru fyrir að gefa út slík leyfi. Það var vegna þeirra rannsókna sem lágu fyrir af hálfu Hafrannsóknastofnunar um stofnstærð þessara tilteknu tegunda sem gefin voru út leyfi til að veiða. Það var talið af hálfu Hafrannsóknastofnunar, sem ég hef enga ástæðu til að efast um, að það væri óhætt að veiða úr þessum stofnum út frá þeim sjónarmiðum. En eins og hv. þingmaður man hins vegar vel kom líka fram í máli mínu síðast þegar hún spurði mig um þetta, sem var líklega fyrr á þessu ári, að þessi leyfi hafa ekki verið nýtt núna.
Ég tel mjög mikilvægt, og hef óskað eftir því við hæstv. sjávarútvegsráðherra, að fram fari heildarmat á þessum veiðum, ekki eingöngu út frá stofnstærð heldur út frá sjálfbærri þróun, þ.e. annars vegar um efnahagsleg áhrif veiðanna og samfélagsleg en líka heildstæð umhverfisáhrif. Það tengist auðvitað því sem þingmaðurinn nefnir um loftslagsáhrif. Slíkt mat þarf að fara fram og ég tel ekki að það hafi farið fram eins og hv. þingmaður þekkir því hún hefur spurt mig að því áður. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gaf út skýrslu sem ég taldi ekki veita slíkt fullnægjandi mat og ég legg mikla áherslu á að það verði framkvæmt.