leyfi til hvalveiða.
Herra forseti. Ég er nokkuð ánægð með að hæstv. ráðherra segi að ég hafi spurt ákveðinna spurninga áður þó að í millitíðinni hafi verið settar fram veigamiklar upplýsingar byggðar á rannsóknum á áhrifum hvala á loftslagsmálin. Af hverju segist ég ánægð með að ráðherra bendi á að ég hafi spurt áður? Það er af því að við fáum aldrei nein svör hér. Það eru alltaf einhverjir útúrsnúningar. Það sem stendur eftir er að Vinstri græn eru ekki að beita sér fyrir því að hvalveiðibann verði sett á þrátt fyrir að vera í forystu í þessari ríkisstjórn. Svarið er að setja eigi málið í nefnd. Það á að setja málið í nefnd. Það eru iðulega svörin hér, ef menn treysta sér yfirleitt til að standa með sannfæringu sinni, af hálfu ríkisstjórnarflokkanna.
Ég spyr aftur og vona að ég fái skýrt svar: Mun hæstv. ráðherra beita sér fyrir því að Íslendingar hætti að drepa hvali?