150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

leyfi til hvalveiða.

[10:50]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mér finnst að stjórnmál eigi ekki endilega að snúast um frasa heldur að við eigum að byggja ákvarðanir okkar á gögnum. Þess vegna mæltist ég til þess við sjávarútvegsráðherra á sínum tíma, eftir að þau gögn lágu fyrir sem hæstv. ráðherra lagði hér fram, bæði frá Hafrannsóknastofnun um stofnstærð og frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, að víðtækara mat færi fram á áhrifum hvalveiða og mat á sjálfbærni hvalveiða út frá því sem ég fór yfir áðan. Ef hv. þingmaður vill kalla slíka rannsókn að setja mál í nefnd erum við algjörlega ósammála um gildi vísinda, rannsókna og gagna fyrir vandaða ákvarðanatöku.