raforkuöryggi.
Hæstv. forseti. Ég veit ekki hvaða áfellisdóm hæstv. ráðherra er að tala um, ekki var hún beðin um að fella neina dóma. Það er hins vegar spurt: Hvernig stendur á því að ríkisfyrirtækin eru ekki betur í stakk búin þegar augljóst er að veðurspáin er vond? Það hefur áður komið fyrir að línur hafi slitnað, það hefur áður komið fyrir að selta hafi sest á mannvirki og rafmagn slegið út en það er langt síðan að rafmagn hefur farið út í slíkan tíma sem nú er. Það er annað mál að björgunarsveitir landsins virtust hafa vaðið fyrir neðan sig. Þær fluttu björgunarbíla norður í land til að vera viðbúnar. Það virðist ekki vera þannig að Rarik eða Landsnet hafi flutt varaaflsstöðvar norður í land þrátt fyrir veðurspána, ekki flutt rafmagnsstaura til að vera viðbúin ef línur brotnuðu. Mér skilst að Þeistareykjalína hafi ekki brotnað, það hafi verið einhverjar tæknilegar bilanir, líklega vegna ísingar eða eitthvað slíkt.
Það er óásættanlegt að þetta sé að gerast á þessum tíma, hæstv. ráðherra og virðulegur forseti, að við séum ekki betur undirbúin en þetta. Við hljótum að krefjast þess að þetta mál verði skoðað. Ég geri ráð fyrir að Miðflokkurinn muni biðja ráðherra um skýrslu um þetta mál, afleiðingar þess, og reyna þá að fókusa á að þetta geti ekki komið fyrir aftur.