raforkuöryggi.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég nefni bara aftur að það er auðvitað þessara fyrirtækja að svara fyrir þær ákvarðanir sem þau taka. Þau fyrirtæki eru í opinberri eigu. Þau fyrirtæki eru með stjórnir og þau svara fyrir það. Ég fagna því að hver sem það er hér á þingi kalli eftir sérstökum upplýsingum, bæði almennt um stöðu, líkt og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hefur gert, en sömuleiðis hvers konar skýrslum um hvað megi læra af þessu.
Ég hef verið í góðum samskiptum bæði við forsvarsmenn Landsnets og Rariks undanfarna daga og fylgst mjög náið og grannt með því hver staðan er og þekki þau dæmi sem hv. þingmaður nefnir. Og bara þannig að það komi skýrt fram heyrist mér við hv. þingmaður vera algjörlega sammála og ég geri ráð fyrir því að flestir í þessum þingsal séu það og að enginn þurfi að fara í keppni um það hver standi mest með flutnings- og dreifikerfi raforku (Forseti hringir.) eða þeim landsvæðum þar sem staðreyndin er bara sú að þau eru ekki með eins sterka innviði og eru hér. Þess vegna nefndi ég í Morgunblaðinu að stundum finnst mér skorta skilning höfuðborgarbúa á því að staðan er ekki eins góð á öðrum landsvæðum. (Forseti hringir.) Þegar kemur síðan enn þá verra veður þar finna íbúar þeirra svæða sérstaklega fyrir því.