150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjármagn til heilbrigðismála.

[10:58]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Við búum í ríku landi, ríku af auðlindum og gæðum. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í Kryddsíld Stöðvar tvö fyrir rétt um þremur árum, þá sem nú með ríkisfjármálin á sínu borði, að það þyrfti náttúrlega einhverja geðveiki til að sjá ekki hvað þetta land væri frábært sem við byggjum á. Þetta er svo sannarlega frábært land sem við búum yfir, við erum rík þjóð sem hefur staðið sig frábærlega á mörgum sviðum en þessi gæfuríka þjóð hefur verið misheppin með ríkisstjórnir þegar kemur að því að viðhalda mikilvægum innviðum okkar. Í raun má segja að þetta sé frábært land og mögnuð þjóð þrátt fyrir misgæfulegar ríkisstjórnir. Hvað erum við að tala um? Samkvæmt glænýrri skýrslu OECD um heilbrigðismál er það staðfest sem fagfólk og fjöldi annarra hefur haldið fram um árabil, við setjum alls ekki nægt fé til heilbrigðismála. Það hefur verið um það fjallað að víða skorti fé í heilbrigðiskerfið en með þessari skýrslu sjáum við það svart á hvítu að samanborið er framlag til heilbrigðismála hér á Íslandi fjarri því sem þekkist í kringum okkur og órafjarri Norðurlöndum, sem við viljum svo gjarnan bera okkur saman við. Með leyfi forseta vil ég vitna í hæstv. fjármálaráðherra sem sagði aðspurður að það væri „eitthvað að kerfi sem tekur sífellt við stórauknum fjármunum en lendir viðstöðulaust í rekstrarvanda“. Nú hefur hæstv. fjármálaráðherra fengið staðfest að hvorki fleiri né færri en 21 Evrópuríki leggur hærra framlag til heilbrigðismála. Við erum undir meðaltali ríkjanna, sem er 8,8% af vergri landsframleiðslu, því að við leggjum einungis til 8,3%. Ríku þjóðirnar, öll Norðurlöndin, Þýskaland og fleiri, leggja um 10–11% af landsframleiðslu.

Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Getur ekki verið að það sem sé að þessu kerfi hér á Íslandi sé ríkisstjórn sem þegar á hólminn er komið er kannski ekkert sérlega flink í að forgangsraða verkefnum og afla nauðsynlegra tekna?