150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjármagn til heilbrigðismála.

[11:01]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður segir okkur misheppin með ríkisstjórnir. Ætli það endurspeglist ekki í því að þjóðin er misheppin með þingmenn. En við erum með lýðræðisfyrirkomulag sem hefur gengið vel og skarar fram úr öllum öðrum fyrirkomulögum við að koma saman stjórn í landi. Hér gerir hv. þingmaður heilbrigðismálin að umtalsefni og hlutfall vergrar landsframleiðslu til heilbrigðismála á Íslandi. Ég segi: Það er ekki algildur mælikvarði á gæði heilbrigðismála í einu landi. Í fyrsta lagi erum við með gott heilbrigðiskerfi á Íslandi. Við veitum góða þjónustu, við erum með framúrskarandi heilbrigðisstarfsfólk, við veitum þjónustu úti um allt land, við bjóðum lyf og aðgengi að heilbrigðisþjónustu sem jafnast á við það besta sem gerist. Og, já, það er á alla mælikvarða gott að búa á Íslandi. Við mælumst framar öðrum þjóðum í jöfnuði og almennt í lífshamingju. Þar er um að ræða fjölbreytta flóru mælikvarða sem hver um sig sýnir Ísland ávallt meðal þeirra þjóða sem skara fram úr í hópi þjóðanna.

Hvers vegna er verg landsframleiðsla ekki algildur mælikvarði á framlög til heilbrigðismála? Ég ætla að nefna eitt. Við Íslendingar erum ung þjóð og það er línulegt samband á milli aldurs þjóðar og þarfar fyrir framlög til heilbrigðismála. Eftir því sem þjóðir eru yngri, þeim mun minni er þörfin fyrir framlög til heilbrigðismála, og öfugt, eftir því sem fleiri eru komnir á efri ár, þeim mun meiri er þörfin. Þegar leiðrétt er fyrir þessu birtist allt önnur mynd en sú sem hv. þingmaður dregur upp og segir okkur vera undir meðaltali OECD-ríkjanna. Að sjálfsögðu verðum við að horfa til þessara þátta en við eigum ekki bara að horfa til þeirra, við eigum að spyrja okkur hversu sátt við erum við þjónustuna. Það er þjónustan og gæði hennar en ekki hlutfall af vergri landsframleiðslu sem öllu skiptir.