150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjármagn til heilbrigðismála.

[11:03]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra kærlega fyrir hans orð en þó kannski ekki svar vegna þess að hann var spurður hvort það gæti verið að vandamálið á Íslandi væri ríkisstjórnin sem ekki er tilbúin til þess að setja nægilegt fé til heilbrigðismála. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra hefur fylgst með fréttum að undanförnu. Fyrir dyrum standa uppsagnir á Landspítala sem þó hefur verið í nægum kröggum að undanförnu, það er verið að segja upp fastlaunasamningum allra starfsmanna Landspítalans, bráðamóttaka í Fossvogi hefur verið algjörlega smekkfull mánuðum saman og mjög yfirhlaðin þar sem fólk kemur þangað inn og því er ekki hent út á götu.

Hæstv. ráðherra talaði um að þjónusta væri framúrskarandi. Það er ekki ríkisstjórninni að þakka að við veitum framúrskarandi heilbrigðisþjónustu heldur því heilbrigðisstarfsfólki sem hleypur og hleypur og hleypur langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Heilbrigðisstarfsfólkið sjálft segir að öryggi sjúklinga sé ekki tryggt í því ástandi (Forseti hringir.) sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur býður upp á. Þess vegna vil ég að lokum (Forseti hringir.) biðja hæstv. fjármálaráðherra um að líta þótt ekki væri (Forseti hringir.) nema örsnöggt á tölurnar sem standa í OECD-skýrslunni.