150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

afbrigði.

[11:08]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér erum við að fara að greiða atkvæði um afbrigði um mál sem eru enn og aftur allt of seint fram komin. Í það minnsta eitt þeirra hefði í sjálfu sér getað verið komið fyrir löngu, hið svokallaða fjölmiðlamál, en það hefur þvælst um í ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum í einhvern tíma sem skýrir væntanlega hversu seint það er komið hingað inn. Það er hins vegar ekki dagsetningarmál þannig að það er sérstakt að ætla að pressa það í gegn á lokadögum þingsins. Það hefði líka verið hægt að mæla fyrir því í janúar. Það er þó greinilega vilji meiri hlutans að mæla fyrir því á þinginu og eftir atvikum koma því til nefndar. Miðflokkurinn mun hins vegar ekki samþykkja afbrigði í þeim málum sem þarna er um að ræða og verður því á rauðu þegar kemur að atkvæðagreiðslu um afbrigði.