150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

afbrigði.

[11:09]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni, það er orðið æðiþreytandi að alltaf þurfi að leita afbrigða til að hleypa málum inn svona seint, löngu eftir liðinn frest. Eitt er þó áhugavert varðandi mál eins og staðfestingu ríkisreiknings. Sá reikningur lá fyrir fyrir löngu. Er ekki hægt að stilla eitthvert dagatal í fjármálaráðuneytinu til að menn muni eftir því að leggja ríkisreikninginn fyrir þingið svo að ekki þurfi að leita afbrigða til að koma honum á dagskrá á síðustu stundu þegar hann er búinn að liggja mánuðum saman í ráðuneytinu?