afbrigði.
Virðulegi forseti. Það hefur verið kvartað undan því í vetur að mál komi ekki inn frá ríkisstjórninni. Svo koma þau hingað á síðustu stundu og ég hljóma svolítið eins og biluð plata en það er vegna þess að aftur og aftur kemur upp sama staðan, að mál eru unnin of hratt, þau eru illa úthugsuð og fá ekki viðunandi meðferð þingsins. Það er umfram allt óþarfi. Það er alveg hægt að koma fyrr inn með mál og mér finnst að virðulegi forseti ætti að fara að sýna smáaga gagnvart ríkisstjórninni, segja bara nei, að hlutirnir verði ekki teknir á dagskrá með afbrigðum, kannski þetta mál vegna þess að það er mikilvægt en ekki bara hvaða mál sem ríkisstjórninni dettur í hug að leggja fram löngu eftir að tíminn er runninn út.
Einnig vil ég minnast á að ég tók ekki eftir að hringt hefði verið inn áðan. Er það rétt hjá mér? (Gripið fram í: Það er rétt.) Já, mér finnst það alls ekki mega verða einhver vani vegna þess að þingmenn þurfa að vita af því þegar það er atkvæðagreiðsla.