150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[14:09]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Í fyrri ræðu minni um þetta mál í dag leitaðist ég við að varpa ljósi á tímalínuna, á söguna og ástæðuna fyrir því að að við höfum þessa ríku þörf fyrir að ræða vandlega öll mál er varða skipulag okkar samfélags og ekki síst þegar kemur að hlutverki þjóðkirkjunnar í því skipulagi. Í þeirri viðleitni minni vitnaði ég í lokaverkefni Orra Freys Rúnarssonar til BA-gráðu í stjórnmálafræði og var það fyrst og fremst gert til að sýna með táknrænni hætti öll þessi ártöl, til að menn fengju myndrænni sýn á það og myndrænni hugmynd um það hversu gríðarlega langan tíma mótun þessarar skipunar okkar hefur tekið. Við því brást hv. þm. Smári McCarthy með skemmtilegum hætti og úr því varð fróðleiksstund og mig langar, með leyfi forseta, að endurtaka leikinn, þó bara að mjög óverulegu leyti.

Ég vitna aftur í þessa sömu ritgerð þar sem má segja að ný stefna sé rædd, með leyfi forseta:

„Þessi nýja stefna var talsvert gagnrýnd af kommúnistum sem töldu Alþýðuflokkinn svíkja loforð með því að berjast ekki gegn trúarbrögðum. Stefna Þórhalls biskups um samband ríkis og kirkju hafði gríðarleg áhrif á framtíðartengsl ríkis og kirkju. Skoðanir stjórnmálamanna breyttust örsnöggt úr því að stefna að aðskilnaði ríkis og kirkju til að tryggja sjálfstæði þjóðkirkjunnar, yfir í að standa vörð um tengslin. Ástæðan fyrir þessum breytingum var sú að flokkarnir vildu halda í tengsl kirkjunnar við sögu og menningu þjóðarinnar, en auk þessa var ákaflega hagkvæmt fyrir ríkisvaldið að halda þessum tengslum og hafa þar með tögl og haldir varðandi stjórn kirkjunnar.

Ímynd presta og starfssvið þeirra hefur tekið miklum breytingum með breyttum áherslum í þjóðfélaginu. Í upphafi síðustu aldar voru haldnar almennar prestskosningar og var takmark þeirra að færa stjórnvald kirkjunnar frá ríkisvaldinu til fólksins og efla þannig kirkjuna sem lýðræðislega stofnun. Prestar voru margir hverjir óánægðir með þetta fyrirkomulag og mátti gæta vaxandi óánægju eftir því sem árin liðu. Árið 1987 setti Alþingi lög um prestskosningar sem fóru fram sama ár, en lögin gerðu lítið til þess að slökkva í óánægjuröddum. Þannig má segja að sættir hafi ekki náðst í málinu fyrr en árið 1999 þegar lög voru samþykkt um að fimm manna nefnd skyldi sjá um skipan sóknarpresta í hverju prestskalli ásamt vígslubiskupi og prófasti.“

Svo segir hér um embætti biskups Íslands og stjórnskipun kirkjunnar að biskup Íslands sinni margþættu starfi og sterk tengsl ríkis og kirkju komi bersýnilega fram í starfi hans.

Þetta er eðli málsins samkvæmt í annarri ræðu miklu styttra innlegg og styttist í að þessari umræðu ljúki. En megintilgangurinn með bæði þessari ræðu og fyrri ræðunni, sem varð til þessara orðaskipta milli mín og hv. þm. Smára McCarthys, var að varpa betra ljósi á það að sagan segir okkur að í þessum málaflokki hafa menn alltaf flýtt sér hægt. Þess vegna fyndist mér að slík mál ættu að koma fyrr inn í þingið, menn hefðu meiri tíma og væru ekki settir undir einhverja dagsetningarpressu, því að eins og gefur augaleið eftir þessa yfirferð mína þá hafa menn gefið sér drjúgan tíma, herra forseti.