staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir söguyfirlitið og tímalínuna því að það skiptir máli í þessu samhengi.
Mig langaði til að vekja athygli hv. þingmanns á áliti kirkjueignanefndar sem var gefið út árið 1984 og er einmitt gríðarlega góð yfirferð yfir söguna, sérstaklega frá siðaskiptum, og sögu þessara kirkjueigna. Þar kemur m.a. fram að þær jarðeignir sem þjóðkirkjan sjálf verður talin lögformlegur eigandi að, sem sérstök stofnun, eru einungis tvær, þ.e. Skálholt í Árnessýslu, sem ríkið afhenti þjóðkirkjunni með heimild í lögum nr. 32/1963, og Langamýri í Skagafirði, sem þjóðkirkjunni hafði verið gefin nokkrum árum fyrr, fyrir 1984. Allt hitt eru í rauninni safnaðarkirkjur víðs vegar um landið. Við siðaskiptin tekur konungur allt yfir og konungur er ríkið og þetta er allt voðalega flókið o.s.frv. Það sem kirkjueignanefnd gerir er að rekja síðan þá, eftir siðaskiptin og eftir að allt þetta safnaðist á eina hönd, hvaða eignir sem kóngur fékk hafi verið seldar frá kirkjunni og nefndin endar með þennan 350 blaðsíðna lista af eignum sem er ekki búið með sannanlegum hætti að selja frá kirkjunni. Sá listi, mjög vel rökstuddur, er í rauninni það sem liggur undir kirkjujarðasamkomulaginu þegar allt kemur til alls. Þegar fólk er að vísa í 25% af landinu o.s.frv. þá stenst það ekki, það er búið að afgreiða það. Þessi listi er í rauninni bestu gögnin okkar. Við eigum að eiga þessa góðu heimild.
Það sem vantar samt dálítið í þessa tímalínu og svo þessa heimild er að í rauninni er þarna um gríðarlega mikla pólitík að ræða því að velflestir sem eru á þingi á þeim tíma eru bændur víðs vegar að sem hafa jafnvel einhverja aðkomu að þeim kirkjum sem verið er að ræða um. Það er áhugaverður vinkill.