150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[14:17]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Áfram heldur umræðan að vera mjög fróðleg. Vissulega má segja að þingmenn hafi stundum leyft sér að fara alveg út á jaðarinn í meginefni málsins og það er í sjálfu sér eðlilegt þegar stór mál eru undir og mál er varða grundvallarskipan samfélagsins og grundvallarskipan þjóðkirkjunnar. En ég vil fyrst og fremst þakka hv. þingmanni fyrir þessa yfirferð og þessa hvatningu og það sem átti sér stað 1984 skiptir verulegu máli í heildarsamhenginu. Það er ljóst.

Í seinna andsvari sínu getur hv. þingmaður leiðrétt mig ef ég fer með rangt mál en ég held að það hafi ekki verið beinlínis nein spurning í þessu og kannski erum við bara komnir á þann stað í umræðunni, sem er kannski líka allt í lagi. En ég skynja jákvæðni hjá hv. þingmanni og hann getur þá aftur leiðrétt það ef sú skynjun mín er ekki rétt. En það sem mér fannst merkilegast af því sem kom fram var þessi pólitíska nálgun, því að auðvitað er þetta pólitík. Í eðli sínu er þetta ekkert annað en pólitík, öll skipan samfélags er pólitík. Þar af leiðandi tek ég bara undir með hv. þingmanni að vissulega er um hápólitískt mál að ræða hvernig við kjósum að hafa okkar samfélagssáttmála og hvernig grunnstoðir okkar eru og grunnstofnanir í samfélaginu. Það er rétt hjá hv. þingmanni, það er hápólitískt.