skráning raunverulegra eigenda.
Frú forseti. Ég sé í sjálfu sér ekki hvernig 28 dagar til viðbótar munu hjálpa neinum. Ég rakti það í andsvari við hv. þm. Óla Björn Kárason áðan að um er að ræða rafræna skráningu sem tekur langflest fyrirtæki á landinu örugglega bara nokkrar mínútur. Ég get ekki alveg sagt til um hversu margar mínútur en þær verða ekki mjög margar. Ég held ekki að 28 dagar til viðbótar muni gjörbreyta niðurstöðunni. Ég held að það að velja 1. febrúar sé hægt að rökstyðja — það væri gaman ef það væri aðeins rólegra í hliðarsal — með tilvísun í, eins og ég nefndi í ræðu minni, að næsti fundur hjá FATF er í febrúar. Það er rökstuðningurinn. Ég hef ekki séð neinn rökstuðning fyrir 1. mars. Ég hef ekki séð neitt annað en að það gefi aukalega 28 daga fyrir verkefni sem tekur flest af þeim fyrirtækjum sem eru í landinu 5–10 mínútur að framkvæma. Vissulega mun þetta taka lengri tíma hjá einhverjum fyrirtækjum en ég trúi því ekki að það muni taka 28 daga, hv. þingmaður, því miður. Ég hef ekki svo litla trú á nútímatækni, ég þykist vita að jafnvel hægvirkustu tölvur væru innan við 28 daga að leysa úr þessu tiltekna vandamáli.
Staðan er sú að við erum á þessum gráa lista. Við munum ekki — (Gripið fram í.) ha? (ÓGunn: Þess vegna erum við að bregðast við.)Já, við erum að bregðast við en eftir því sem ég kemst næst mun FATF ekki taka einhverjum skýrum merkjum frá okkur sem ásættanlegum niðurstöðum. Ef ég skil þetta rétt er verið að uppfylla kröfurnar 48. Svarið er já eða nei og ef svarið er nei (Forseti hringir.) verðum við væntanlega áfram á listanum.