150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

skráning raunverulegra eigenda.

452. mál
[15:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það að bregðast ekki við vandamálum og spillingu tel ég líka vera spillingu. Það að leyfa henni að viðgangast þrátt fyrir allt. Á síðasta kjörtímabili var samþykkt breyting á fyrirtækjaskrá með dyggum stuðningi þáverandi fjármálaráðherra, Benedikts Jóhannessonar, sem ég hef ítrekað sagt og segi enn að sé besti fjármálaráðherra sem við höfum haft hingað til. Í kjölfarið vonuðumst við til að farið væri í sambærilega opnun á ársreikningaskrá og hluthafaskrá, það þurfti meiri breytingar í kjölfarið með því að þær væru uppfærðar reglulega, kannski ekki ársreikningaskrá en alla vega hluthafaskrá. Við höfum náð fram þessari breytingu á fyrirtækjaskrá, sem er einmitt eitt af þeim tækjum sem þarf nauðsynlega að hafa til að ná í raunverulega eigendur, til að hver sem er geti komist að því hverjir séu raunverulegir eigendur þeirra fyrirtækja sem þeir þurfa að eiga viðskipti við, sem skiptir öllu máli. Maður vill vita við hvern maður á viðskipti. Ef maður á í viðskiptum við einhvern sem er með röð af kennitöluflakksfyrirtækjum á bak við sig segir maður: Nei, ég vil fá borgað strax, ekki reikning. Ekki kredit. Það er bara augljós niðurstaða. Það er orðið dálítið síðan en út af því að við erum að fara í þetta þá liggur frumvarpið um opnun ársreikningaskrár og hluthafaskrár enn þá í þingmálaskránni og ekkert frumkvæði hefur einu sinni verið hjá stjórnvöldum: Heyrðu, er kannski sniðugt að reyna að opna þetta líka, fyrst við erum einu sinni að fara í raunverulega eigendur? Að aðgengi sé til að komast að því hverjir það eru, ekki bara aðgengi að raunverulegum eigendum fyrir suma, ekki fyrir alla.