150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

skráning raunverulegra eigenda.

452. mál
[15:47]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil ekki lengja þessa umræðu mikið en ummæli hv. þingmanns um viðskiptaleynd vöktu áhuga minn. Ég hygg að við séum ekki alveg á sömu blaðsíðu þar. Auðvitað er það svo að fjöldinn allur af málum varða og þurfa að varða viðskiptaleynd. Jafnvel lögum samkvæmt verða þau að vera varðveitt sem trúnaðarmál. Fjölmargar upplýsingar í viðskiptum fyrirtækja, sem varða t.d. samkeppnisrétt, geta skaðað útboð ef slíkum upplýsingum er deilt og svo mætti áfram telja. Ég held að við þurfum að fara varlega í að tortryggja það að öllu leyti að eðlilega standi fyrirtæki vörð um viðkvæmar upplýsingar í rekstri sínum sem varða t.d. samkeppnisstöðu fyrirtækisins gagnvart öðrum keppinautum sínum á markaði. Við gerum beinlínis í lögum kröfu um að fyrirtæki séu ekki að deila með sér slíkum upplýsingum yfir höfuð.

Ég geri ráð fyrir, og mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í það, að hann sé ekki að vísa til slíkra upplýsinga, að fyrirtæki geti ekki haft trúnað um viðkvæmar upplýsingar sem slíkar, það eigi ekki allt að liggja á torgum í þeim efnum. Og þó að ég sé sammála hv. þingmanni að aukið gagnsæi sé gott þá er fullkomin gegnumlýsing heldur ekki alltaf af hinu góða, hvorki í lífi okkar né í rekstri fyrirtækja.