fjáraukalög 2019.
Virðulegur forseti. Samanburður við fyrri fjáraukalög er enn nægilega nákvæmur til þess að segja að þau séu nákvæmlega eins. Út frá því sjónarhorni sem ég er að horfa á, miðað við lög um opinber fjármál, miðað við fjármálaáætlun og fjárlög, sem á að vera stefnumiðað og markmiðamiðað, mælanlegt o.s.frv., er ekkert um það í fjáraukalagafrumvarpinu. Framsetning á þeim fjárheimildum sem leitað er eftir er bara nákvæmlega eins og í fyrri fjáraukalögum. Þar endar minn samanburður. Það er hægt að draga fram að tekjurnar séu ekki þar o.s.frv., sem er munurinn, en ég komi ekki einu sinni nálægt því að reyna að líkja því saman, ég er að horfa í þessi útgjaldaviðmið.
Mér finnst þetta í raun opinbera vandamálið í hnotskurn að hv. formaður fjárlaganefndar segir að hér sé verið að koma með tillögur þar sem aukinna fjárheimilda sé þörf. Það er bara nákvæmlega ekki eins og lög um opinber fjármál gera ráð fyrir að eigi að vinna fjáraukalagafrumvarp. Það er ekki tímabundið, ófyrirséð o.s.frv. (WÞÞ: Út frá þeim skilyrðum.) Ég segi það út frá þessum skilyrðum, um tímabundið, ófyrirséð og óhjákvæmilegt, er ekki samasemmerki á milli þess og að aukinna fjárheimilda sé þörf. Það er alltaf hægt að búa til alls konar skýringar á því að ágætt væri að fá aðeins meiri fjárheimildir hér og þar, en það er ekki tilgangur varasjóðanna eða fjáraukalaganna að mæta þörf fyrir auknar fjárheimildir.