150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[19:57]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Aðeins út frá orðum hv. þingmanns um hvar fjárheimilda væri þörf: Ég dró það fram vegna þess að þar erum við ekki að færa lækkun á málaflokka eins og gjarnan var gert heldur þar sem þörf er. Það er þá út frá skilyrðum um fjáraukalög, um óvænt, óhjákvæmileg og tímabundin útgjöld, eins og 26. gr. kveður á um. En ég ætlaði aðeins að fara yfir þessar 8 milljónir, mér finnst það líka ágætisdæmi, talandi um mælikvarða, og hvernig við vinnum þetta almennt í fjárlögum og fjáraukalögum. Það var sameiginlegt mat ráðuneyta að um væri að ræða mjög mikilvægt mál fyrir hagsmuni Íslands og nú er ég að vísa í meirihlutaálit fjárlaganefndar og raunar mjög mikilvægt mál fyrir dómaframkvæmd efri deildar Mannréttindadómstólsins um 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Af þeim sökum var talið óhjákvæmilegt að fá málinu stærri lögmannsstofu og faglegt mat og það getur maður mjög vel skilið. (Forseti hringir.) Það er væntanlega tímabundið og væntanlega er (Forseti hringir.) sú staða sem hefur þróast og komið upp óvænt.(Forseti hringir.) Menn sáu það ekki endilega fyrir að þurfa að leita erlendrar ráðgjafar þannig að þetta er ágætisdæmi, en auðvitað erum við að ræða hér matskennda þætti.

(Forseti (HHG): Forseti minnir hv. þingmann á að gæta að ræðutíma.)