150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[19:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þar sem aukinna fjárheimilda er þörf út frá þeim skilyrðum, segir hv. þingmaður. Ég er að gagnrýna það að ýmsar af þessum fjárheimildum sem leitað er eftir passa ekki við þau skilyrði heldur eru einfaldlega út af almennri þörf um útgjaldaaukningu. Þess vegna bið ég um rökstuðning. Það er ekkert óhjákvæmilegt að nauðsynlegt sé að leita til þessarar yfirnefndar Mannréttindadómstólsins. Það hefði líka getað verið ákvörðun að sætta sig við niðurstöðu dómsins. Það hefði að mínu viti verið mjög góð niðurstaða fyrir dómskerfið eins og það leggur sig af því að við ættum ekki að vilja dómsmálaráðherra sem skiptir sér af skipun dómara á þann hátt sem gert var í Landsréttarmálinu. Við ættum ekki að vilja það. En það eru pólitískar aðstæður sem einhvern veginn heimta þessa niðurstöðu og það er pólitískt en ekki óhjákvæmilegt.