150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[20:00]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni prýðisræðu. Ríkisendurskoðun gerir nokkrar athugasemdir við þessa framsetningu á fjáraukalögum. Við þekkjum að endurskoðendur tala af varfærni en það var nokkuð skýrt að Ríkisendurskoðun er ekki par hrifin af þessari meðhöndlun, t.d. á framlagi til þjóðkirkjunnar. Ég held að það megi álykta skýrt út frá þeim athugasemdum að þessi ráðstöfun er einfaldlega ekki í samræmi við lög um opinber fjármál. Þar sem þetta er vonandi í síðasta skiptið sem við afgreiðum þennan tiltekna fjárlagalið með þessum hætti — en höfum gert nokkur undangengin ár, þetta er fyrirsjáanlegasti ófyrirséði útgjaldaliður ríkisins á undanförnum árum — er kannski ekki ástæða til að gera mikið úr því hér. Það sem ég velti þó aðeins fyrir mér og hef meiri áhyggjur af út frá fordæmisgildi er annað sem Ríkisendurskoðun gerir athugasemd við, að það sé verið að draga drjúgan hluta af hinum almenna varasjóði frá auknum útgjöldum í fjáraukalögum. Ríkisendurskoðun bendir eðlilega á að heppilegast væri að taka einfaldlega tiltekna fjáraukalagaliði út og færa beint yfir í almennan varasjóð og vera ekkert að blanda honum inn í fjáraukalögin.

Ég velti dálítið fyrir mér hvað hv. þingmanni finnist um þessa ráðstöfun almennt. Hér er verið að skapa fordæmi, þetta hefur ekki verið gert áður, ekki svo ég muni til, og við erum auðvitað enn svolítið að móta fordæmin í því hvernig við framkvæmum þessi lög, en er verið að draga þingið einhvern veginn til ábyrgðar af því að t.d. fjölmargir af þessum liðum sem verið er að tína til í fjáraukanum standast einfaldlega ekkert mál þegar kemur að kröfum sem settar eru fram í lögum um opinber fjármál um hvað teljist til heimilla útgjalda? Hvað finnst hv. þingmanni um þessa ráðstöfun?