150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[20:05]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þarna er annar þáttur líka sem Ríkisendurskoðun gerir að umtalsefni og ég veit að hv. þingmaður þekkir mætavel, því að það er stundum eins og að reyna að draga það út með töngum, og það er yfirlit yfir ráðstöfun varasjóða, bæði hins almenna varasjóðs en ekki síður varasjóða einstakra málaflokka. Meiri hlutinn hefur meðal m.a. stært sig nokkuð af því að nú sé frávik frá fjárlögum miklu minna en oft hefur áður verið. Þetta er reyndar 43 milljarða sveifla en við skulum ekki gera það að umtalsefni hér. Þetta eru umtalsverðar heimildir, 1% í almennum varasjóði, allt að 2% í varasjóði málaflokka. Hér er talað um að það sé miklu minna frávik í fjáraukanum miðað við fjárauka fyrri ára en þá vantar alveg að taka tillit til varasjóðanna sem hafa verið lagðir til hliðar. Það er einmitt erfitt að fá yfirlit yfir þá og þá er spurningin: Væri ekki eðlilegt að ríkisstjórn (Forseti hringir.) legði fram yfirlit yfir ráðstöfun varasjóðs um leið og hún leggur fram fjáraukalagafrumvarp sem þetta? Best væri náttúrlega að hún legði ekki fram fjáraukalagafrumvarp.