150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[20:06]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þegar ákvörðun liggur fyrir á að tilkynna fjárlaganefnd um úthlutun úr varasjóðum. Að mér best vitandi hefur það aldrei gerst samdægurs áður en úthlutun fer fram. Alþingi gæti ályktað sem svo að þetta samræmdist ekki skilyrðum um notkun á varasjóðum. Við höfum aldrei verið spurð þannig.

Einhvers staðar er hérna önnur breytingartillaga sem ég var að reyna að blaða í gegnum til að geta vitnað beint í hana en það var verið að færa fjárheimildir af einhverju innan dómstólasýslunnar yfir á varasjóð málaflokksins í fjáraukalögunum sem mér finnst rosalega skrýtið í staðinn fyrir að vita það sem eftir er ársins í hvað á að nota varasjóðinn. Þá er frekar sett fjármagn í varasjóðinn en beint í það verkefni sem líklega er frekar augljóst að eigi að nýta fjárheimildir í frekar en eitthvað annað.