fjáraukalög 2019.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög góð spurning. Dæmi um þetta vandamál kom fram þegar Ríkisendurskoðun kom fyrir nefndina ásamt fulltrúum ráðuneytisins og þar var nefnt að Ríkisendurskoðun hefði gert ýmsar tillögur til ráðuneytisins um betrumbætur á framsetningu fjárlaga til að hjálpa Alþingi og gera þetta skiljanlegra fyrir Alþingi. Fyrsta spurningin mín var þá: Af hverju vorum við ekki spurð? Ríkisendurskoðun lagði til betri útskýringar fyrir þingið án þess að þingið segði til um hvort þetta væru betri útskýringar fyrir það. Hvað vitum við hvort það hjálpar okkur eitthvað sem Ríkisendurskoðun lagði til? Það hjálpar væntanlega Ríkisendurskoðun að leggja betra mat á framsetningu fjárlaga eða fjáraukalaga en við á þinginu og í fjárlaganefnd viljum kannski eitthvað allt annað. Hver veit? Það er kannski skortur á því einmitt að þingið sé spurt álits.