150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[20:37]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Jú, þetta er skemmtileg samlíking að mörgu leyti. Auðvitað hefði ekki verið neitt vandamál að gera ráð fyrir tiltekinni óvissufjárhæð í fjárlögum til að þurfa ekki að taka þennan lið aftur og aftur inn í fjáraukalög. Það er auðvitað það sem Ríkisendurskoðun er að benda á og við hljótum að hlusta á Ríkisendurskoðun. Flest fyrirtæki hlusta á endurskoðandann sinn þegar hann gerir athugasemd við reikninginn og það hlýtur ríkið að gera líka og læra af.

Mér finnst þetta áhugaverð hugmynd. Mér fyndist það miklu heiðarlegri nálgun í staðinn fyrir að halda áfram þessu endalausa leikriti um að við séum að borga fyrir jarðir sem enginn man eða veit lengur hvað kostuðu, né hver staðan á höfuðstól eða uppgreiðslu er, að við gerum einfaldlega bara skýran (Gripið fram í.) — það er margt órætt í því ágæta máli. (Gripið fram í.) En hvað er athugavert við að gera þjónustusamning við þjóðkirkjuna? Ég sé ekkert athugavert við það. Það er víðtækur stuðningur við hlutverk hennar. Við erum með stjórnarskrárvarin réttindi, hún er hin eiginlega þjóðkirkja. Hún hefur skyldur og ríkið hefur skuldbundið sig til að styrkja hana til að sinna þeim skyldum. En hvað er að því, það er í góðu samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál og 40. gr. um þá samninga sem ríkið gerir, að unnið sé í samræmi við það, að við gerum samninga til fimm ára í senn og þeir feli í sér einhvers konar skilgreiningu á þeirri þjónustu sem veitt er? Það getur verið flókið að setja sumt af því fram. Hvernig setjum við sáluhjálp inn í slíkt og annað þess háttar? En ríkið hefur tekist á við ýmis flókin verkefni í útfærslu á samningum. Ég sé engan grundvallarmun á því að við skilgreinum þá réttindi og skyldur þjóðkirkjunnar í samskiptum við ríkið í þeirri viðleitni að greina þarna betur á milli, og greiðum svo einfaldlega í samræmi við það.