fjáraukalög 2019.
Virðulegur forseti. Ég held einmitt að það sé mjög gott fyrir okkur að hafa það sérstaklega í huga hversu vel okkur hefur gengið og hvaða ótrúlega árangri þetta samfélag hefur náð frá hruni og hvað við höfum náð miklum árangri í agaðri hagstjórn. Hér hafa vextir í sögulegu samhengi aldrei verið jafn lágir og þeir eru í dag. Hér hefur kaupmáttur vaxið um 26,6% frá árinu 2013 og hér halda skattar áfram að lækka.
Hv. þingmanni finnst útgjaldaaukningin hafa verið of mikil. Ég verð reyndar að viðurkenna að núna stöndum við hér og ég held að við séum að nálgast einhvers konar met í umræðu um fjáraukalög. Á sama tíma búa landsmenn okkar við að víða er rafmagnslaust og rafmagnslínur hafa farið í sundur og innviðum okkar er greinilega mjög ábótavant víða úti um land þannig að ég hefði nú kannski meiri áhuga á því og áhyggjur af því að ræða það hér þegar kemur að fjárauka hvort við þurfum hreinlega að fara í einhverjar aðgerðir út af þeim atburðum sem áttu sér stað á síðustu tveimur dögum.