150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[20:53]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og get huggað hann líkt og hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur: Nei, ég óttast ekki að hér sé allt að fara fjandans til, alls ekki. Það er til fallegt og gott spakmæli í íslensku tungumáli sem segir: Enginn er búmaður nema hann barmi sér. (Gripið fram í.) Hv. þm. Ólafur Ísleifsson verður að tala hærra ef hann ætlar að grípa fram í og leiðrétta. (ÓÍ: Nema hann kunni að barma sér.) Já, ég kann það þá alla vega hér.

Það er einmitt kjarni málsins, það er almenn skynsemi að horfa raunsætt á stöðuna. Eins og ítrekað var varað við af svo fjölmörgum aðilum var lagt af stað með of bjartsýnar forsendur. Það þýðir ekki ragnarök, það þýðir ekki einhverja djúpa kreppu eða ógnarástand í efnahagslífinu og við virðumst vera að lenda alveg ágætlega í þessari niðursveiflu. Staðreyndin í sögulegu samhengi er að önnur hver niðursveifla er nokkuð mjúk og önnur hver nokkuð skarpari. Það er því miður hið sveiflukennda eðli íslenska hagkerfisins sem sveiflast meira en flest önnur. Ég get farið í langa umræðu um það, kannski gerum við það síðar í kvöld.

Það er einmitt þetta með skynsemina, að hafa raunsæi að leiðarljósi við fjárlagagerðina. Af því að við erum að ræða hér, m.a. í andsvari hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur áðan, nauðsynlegar innviðafjárfestingar og það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir í andsvari sínu að nú séu ríkisfjármálin að vinna með hagsveiflunni, það sé verið að auka ríkisútgjöldin þegar dregst saman annars staðar, þá hefði ég persónulega talið miklu heppilegra að það hefði verið í formi stóraukinna fjárfestinga en ekki bara stóraukinnar samneyslu. Það skortir verulega á enn þá, eins og t.d. fréttir af raforkukerfinu eru dæmi um, og líka er gríðarlegur skortur á innviðauppbyggingu hjá okkur (Forseti hringir.) í almenningssamgöngum, flugvöllum og vegakerfinu. Þar hefði svo sannarlega mátt spýta mun meira í en verið er að gera.