fjáraukalög 2019.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir svarið. Ég taldi mig vera fullvissan um að hér væri ekki allt, eins og ég orðaði það í andsvari, á heljarþröm, en hv. þingmaður ræðir hér almenna skynsemi og að horfa raunsætt á stöðuna. Auðvitað erum við sammála um það og það er ýmislegt athyglisvert við einmitt þessa sveiflu. Hv. þingmaður kom inn á raungengið í sinni ræðu og við höfum kannski oft tekið mun sterkari aðlögun í gegnum krónuna, en ég get ekki farið út í þá sálma á einni mínútu. Ég ætlaði bara að taka undir með hv. þingmanni og ég veit að það er mat okkar sem störfum í fjárlaganefnd að það væri æskilegt að frumvarpi til fjáraukalaga fylgdi yfirlit sem sýndi ráðstöfunarstöðu varasjóða og vísaði hv. þingmaður í Ríkisendurskoðun. En svo ætla ég að láta liggja eftir það sem Ríkisendurskoðun segir í umsögn sinni, að fyrirliggjandi frumvarp (Forseti hringir.) sé í öllum meginatriðum í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál.