150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[20:57]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni fjárlaganefndar andsvarið. Ég tek undir með honum að auðvitað þurfum við að horfa til þeirra ábendinga sem við fáum og læra hvernig við getum gert betur og þróað þetta tæki sem lög um opinber fjármál eiga að vera fyrir okkur. Þó að það sé alveg rétt sem hv. þingmaður bendir á að Ríkisendurskoðun undirritar ekki þennan reikning með fyrirvara, hann er í megindráttum í samræmi við lög um opinber fjármál, eru fjölmargar ábendingar Ríkisendurskoðunar um það hvað betur mætti fara. Það hlýtur fjárlaganefnd að taka til skoðunar hjá sér og, eigum við að segja, hnykkja á þeim ábendingum til fjármálaráðuneytisins að hlustað sé á ábendingar Ríkisendurskoðunar og við séum þá ekki að takast á við sömu álitaefnin ár eftir ár og við séum að þróa framkvæmdina á lögum um opinber fjármál í rétta átt.