150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[21:21]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og ágæta stutta yfirferð yfir varasjóðina og mikilvægi laganna um opinber fjármál og hver meginmarkmið þeirra eru. Hv. þingmaður gerði þetta vel á stuttum tíma og færi vel á því að fleiri þingmenn þekktu þetta ferli og hvernig þessi lög eiga að virka. Hv. þingmaður spyr sérstaklega um fjárveitingu sem er að finna í fjáraukanum til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, sem ég að sjálfsögðu fagna, og hvort hún hafi verið ófyrirséð. Ég held að það sé nokkuð ljóst að vandi Suðurnesja er síður en svo ófyrirséður. Þetta hefur verið þekkt a.m.k. í nokkur misseri, þarna hefur orðið fordæmalaus fólksfjölgun og álag mikið á lögbundnar ríkisstofnanir á Suðurnesjum eins og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þannig að það er ekkert ófyrirséð við það og hefðu stjórnvöld átt að vera búin að mæta þeim vanda mun fyrr. Það sem er hugsanlega ófyrirséð í hluta af þessu er gjaldþrot flugfélagsins WOW. Það hefur náttúrlega líka skapað ákveðin vandamál, atvinnuleysi á staðnum og aðstoð sem þarf að veita í þeim efnum og það tengist að hluta til heilbrigðisstofnuninni. Ég held að það sé alveg ljóst að þessi tiltekna fjárveiting hefði átt að vera löngu komin í gegnum fjárlög. Það er ósköp einfalt. Vandinn hefur verið til staðar og er þekktur og við höfum rætt hann hér og hv. þingmaður vakið athygli á honum í ræðustól og á nauðsyn þess að bregðast við honum. Við fögnum þessu en ég tel persónulega að það hefði átt að vera löngu búið að taka á þessu máli.