150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[21:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar aðeins að fara lengra inn í þá ágætu ræðu sem hann flutti áðan, það sem hann nefndi um að við hefðum ekki fengið yfirlit yfir ónotaðar fjárheimildir. Mig langar að rifja upp í því sambandi að nú gera þessi lög sem okkur verður svo tíðrætt um einmitt ráð fyrir því að stofnunum og ríkisaðilum sé heimilt að flytja á milli ára óráðstöfuðum heimildum, innan ákveðins ramma og eftir ákveðnum skilyrðum. Þess vegna erum við ekkert að sökkva okkur inn í ónotaðar fjárheimildir á þessum tíma. Við höfum í meiri hluta fjárlaganefndar, rétt eins og hv. þingmaður nefnir, verið mjög skýr og erum mjög skýr í þessu nefndaráliti okkar. Við viljum ganga lengra. Við viljum ganga harðar fram í að beita þeim stýritækjum sem lögin innifela. Þess vegna stendur í meirihlutaáliti okkar að fjármála- og efnahagsráðuneytið skuli nú standa fyrir sérstöku átaki við að kynna og beita þeim stýritækjum sem eru til. Það verður bara að segjast eins og er að við erum að fikra okkur ár frá ári nær því markmiði okkar að komast í það umhverfi að þurfa ekki á fjárauka að halda. Ég held akkúrat að þetta fjárlagafrumvarp sé góður vitnisburður um það og við nefnum það sérstaklega í nefndarálitinu. Við ræðum líka um notkun varasjóðanna og eyðum í það nokkru púðri og ég er nokkuð viss um að með nokkurri sanngirni megi taka undir það, og ég sé í áliti minni hluta fjárlaganefndar að þau taka undir þau sjónarmið. Ég held að það sé mikilvægt, að við séum að þreifa okkur áfram með þessum hætti.

En eftir situr kannski hjá mér að spyrja í seinna andsvari við hv. þm. Birgi Þórarinsson: Er það nokkur goðgá að spyrja hvort nokkur ástæða sé til að hafa áhyggjur af þessum fjárauka í því ljósi hvert við erum að þreifa okkur og hvaða árangri við erum að ná? Mér finnst árangurinn verulegur.