fjáraukalög 2019.
Herra forseti. Ég er sammála hv. þingmanni að við erum á réttri leið í landinu, klárlega, eins og AGS, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Moody's og Seðlabankinn hafa talað um fjármál þjóðarinnar. Mig langar rétt að koma inn á það sem ekki hefur gefist tækifæri til hér í þingsal að ræða raunverulega, en hv. þingmaður kom inn á, varðandi skort á getu til að flytja rafmagn. Það held ég að sé tilheyrandi að ræða aðeins í þessari umræðu, flutningskerfi raforku og dreifikerfi. Ég tel það hins vegar ekki vera vangetu kerfisins eða annað núna eða viljaleysi ríkisstjórnarinnar til að framkvæma í flutningskerfi raforku í landinu. Það hefur verið mikil umræða um þetta í 10, 15, 20 ár. Það sem við höfum einmitt séð í þessu veðri sem hefur verið undanfarna tvo sólarhringa og afleiðingar þess er að það er fyrst og fremst flutningskerfi raforku, meginflutningskerfið, sem er að bresta. Það er háspennan, stóra kerfið. Dreifikerfið hefur staðið sig vel að mestu og að sú stefna sem hefur verið rekin varðandi dreifiveitur á Íslandi, sérstaklega af hálfu Rarik, að setja strengi í jörðu. Á undanförnum árum er búið að setja 65% af því kerfi í jörð og á að klára að fullu fyrir 2035.
Meginflutningsorkukerfið og hvað það hefur gengið erfiðlega að fá samþykktir í gegnum sveitarfélögin, einstakar athugasemdir og allt þetta: Hvernig sér hv. þingmaður það fyrir sér? Fjármagnið hefur svo sannarlega verið til eins og við sjáum. Nú eru þegar hafnar framkvæmdir við Kröflulínu þrjú, það er verið að setja 8 milljarða í þá framkvæmd, frá Kröflu í Fljótsdalsstöð, og 7,5–8 milljarðar munu fara í Hólasandslínu, vonandi hefjast þær framkvæmdir á næsta ári, og síðan vilja menn halda áfram með Blöndulínu. Fjármagnið er til. Hvernig sér hv. þingmaður það fyrir sér að við getum farið í þetta af krafti núna og klárað þessi raforkumál sem skipta öllu máli fyrir stóran hluta landsins?