fjáraukalög 2019.
Herra forseti. Þegar við ræðum um frumvarp til fjáraukalaga fer ekki hjá því að maður hugsi til þess að allar fyrirsjáanlegar fjárhagsráðstafanir eiga að koma fram í fjárlögum og útgjöldin eiga að falla til á árinu og ríkissjóður getur ekki komist hjá því að greiða þau. Hins vegar eiga frávik og óvænt atvik að endurspeglast í fjáraukalagafrumvarpi og í fjáraukalögum. Það eru í sjálfu sér nokkrar stærðir sem hægt væri að tala hér um sem eiga að vera óvæntar en eitt sem slær mann er á bls. 50 í frumvarpinu þar sem segir svo, með leyfi forseta:
„Við endurmat á tekju- og útgjaldahorfum yfirstandandi árs við gerð frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2020 var áætlað að rekstur ríkissjóðs yrði neikvæður um 8,8 milljarða kr. árið 2019. Afkomuhorfurnar hafa nú verið endurmetnar aftur meðal annars með hliðsjón af nýrri þjóðhagsspá Hagstofunnar og með þeim breytingum sem þetta frumvarp gerir ráð fyrir á fjárheimildum. Samkvæmt endurmatinu er gert ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs versni enn frekar og verði neikvæð um 14,8 milljarða kr. sem svarar til 0,5% af VLF. Meginskýring lakari afkomu nú en gert var ráð fyrir í sumar eru enn lægri tekjur en þá voru áætlaðar.“
Nú er það svo að alla vega undanfarin tvö ár hefur Miðflokkurinn m.a. rætt á þingi nauðsyn þess að efla innheimtu á þegar álögðum gjöldum. Í svari við fyrirspurn þess sem hér stendur frá fjármálaráðherra ekki fyrir alls löngu kom fram það álit fjármálaráðuneytisins og starfsmanna þess að að staðaldri væru á sveimi í hagkerfinu 80 milljarðar sem skiluðu sér ekki í ríkissjóð. Hér segir að afkoman versni hjá ríkissjóði um 14,8 milljarða kr. Ég vil benda á það að ef menn hefðu farið að tillögum okkar Miðflokksmanna og eflt innheimtu og skatteftirlit, einkum með stærri aðilum, og þó ekki hefði náðst nema u.þ.b. 10% af því sem á að vera á sveimi í hagkerfinu að mati fjármálaráðuneytisins sjálfs, er um að ræða 8 milljarða kr. Ég held svei mér þá, herra forseti, að það myndi muna um þá upphæð og fjáraukalagafrumvarpið væri kannski ekki eins mikið að vöxtum og eins stórvaxið og það er núna ef menn hefðu farið að þessum ráðum.
Ég vil líka benda á aðeins eitt atriði sem sá sem hér stendur hefur talað fyrir í um sex ár sem er sú staðreynd að einn af stórum farvegum skattundanskota á Íslandi er gisting sem er kennd við Airbnb. Ég bið forseta afsökunar á því að sletta ensku en kann ekki betra nafn á þessu fyrirbæri. Það vill svo til að hæstv. ferðamála-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra setti á stofn sérstakan starfshóp í fyrra til að reyna að ná utan um skráningu á eignum sem eru leigðar út í þessu skyni og hefur í sjálfu sér náð þokkalegum árangri. Skráningar á þeim eignum sem leigðar eru út í þessu skyni voru fyrir tveimur árum og lengur kannski um 5–7%, þ.e. skráðar eignir sem voru leigðar út í þessu skyni voru um 5 eða 7% af öllu framboðinu. Það segir sig náttúrlega sjálft, herra forseti, að bara þarna er um að ræða veigamikið atriði í því að tekjur, sem ættu að vera auðfengnar, nást ekki inn. Síðan hæstv. ráðherra ferðamála, nýsköpunar og iðnaðar setti þennan starfshóp á í fyrra hefur skráningum fjölgað og þær liggja núna í um tæplega 30% af því framboði sem í boði er. Því var kastað fram að bara á því sviði væri jafnvel um að ræða 5–6 milljarða.
Það hlýtur að vera akkur fyrir þá sem kenna sig við samkeppni og einkaframtak og að allir eigi að hafa möguleika til að afla sér tekna á eigin verðleikum og hlýtur að vera kappsmál þessara afla að þeir sem keppa á markaði, hvort það er þessi markaður eða einhver annar, standi skil á þeim sköttum og gjöldum sem tilheyra rekstrinum og séu ekki að skekkja samkeppnisstöðu sér í hag með því að skila ekki sköttum og gjöldum. Mig minnir, herra forseti, að við Miðflokksmenn höfum lagt til í fyrra að ráðnir yrðu u.þ.b. 20 starfsmenn til ríkisskattstjóra og skattrannsóknarstjóra einmitt í því skyni að bæta úr þessu. Við töluðum fyrir daufum eyrum. Við hver fjárlög höfum við Miðflokksfólkið lagt fram tillögur sem ævinlega hafa verið fullfjármagnaðar og ekki, eins og maður segir, skot út í loftið heldur ígrundaðar tillögur og þær hafa oftar en ekki falist í því að við viljum efla tekjuinnheimtu ríkissjóðs. Það veitir náttúrlega ekki af vegna þess að ríkisstjórnin er búin að blása mjög hressilega í útgjaldaauka og virðist oft og tíðum, og það blasir við í þessu fjáraukalagafrumvarpi, hafa stuðst við áætlanir sem hafa verið í sjálfu sér dæmdar fyrir fram til þess að standast ekki. Það kemur fram t.d. að einn af stærstu liðunum í því að þessi stærð er á fjáraukalagafrumvarpinu er einmitt 4 milljarða halli á rekstri Landspítalans eftir að það er búið að bæta í — eftir að er búið að bæta í, þannig að þær áætlanir sem menn hafa gert virðast ekki hafa verið mjög vel ígrundaðar. Og svo ég hoppi aðeins aftur yfir í tekjuhliðina sem ég var að tala um áðan segir á bls. 3 í minnihlutaálitinu sem liggur fyrir, með leyfi forseta:
„Í kaflanum um endurmat á afkomu ársins 2019 kemur fram að heildartekjur lækki um 30 milljarða kr.“
Ég var rétt að enda við, herra forseti, að benda á það að fjármálaráðuneytið sjálft áætlar að hér séu 80 milljarðar á sveimi á hverju ári sem ekki er skilað í ríkissjóð. Því segi ég aftur: Það hlýtur að vera akkur hjá þessari ríkisstjórn að efla innheimtuna. Nú er samdráttarskeið, vonandi skammvinnt og ég hef í sjálfu sér alla trú á því að það verði skammvinnt, og einmitt við þær aðstæður þegar herðir að er þeim mun mikilvægara að innheimta ríkissjóðs sé eins og hún getur orðið best. Ég viðurkenni það vel að hér talar maður sem er búinn að hafa það að starfi í tvo áratugi að vera innheimtumaður ríkissjóðs og ber hag ríkissjóðs mjög fyrir brjósti og vill hag hans sem bestan. Þess vegna er það kannski grátlegast eða það sem manni svíður sárast í þessu, bæði við fjárlagaafgreiðsluna um daginn og nú þegar fjáraukalagafrumvarpið kemur fram, að sú varúð og festa sem við höfum verið að tala fyrir er ekki aðalsmerki þessarar ríkisstjórnar, því miður. Ég er alveg sannfærður um að ef farið væri að þeim ráðum sem Miðflokkurinn hefur t.d. talað fyrir er næsta víst að hægt væri að ná góðum árangri í því að innheimta ríkissjóðstekjur, einkum hjá stærri aðilum sem virðast fara fram hjá neti innheimtunnar. Þá segi ég aftur: Við eigum að tryggja það að þeir sem eru í atvinnurekstri séu að keppa á jafnréttisgrundvelli. Ég nefndi áðan dæmið með þetta gistiapparat, sem ég vil ekki nefna aftur á erlendri tungu, og það er náttúrlega öfugsnúið að við Íslendingar höfum verið undanfarin ár, stórhuga menn, að byggja upp hótel, bæði á Reykjavíkursvæðinu og ekki síst úti á landi, og það virðist svo sem að mörg þessara hótela, glæsileg og vel útbúin, séu ekki að keppa á jafnréttisgrundvelli vegna þess að hluti starfseminnar sem þau keppa við skilar ekki sköttum og skyldum til landsins. Þetta er náttúrlega óþolandi. Það er ekki góð latína að flokkur sem kennir sig við einkaframtak skuli líða það að einhverjir jaðarhópar í flokki þeirra sem stunda viðskipti og fyrirtækjarekstur á Íslandi skuli vera að hasla sér völl á markaði vegna þess og beinlínis með því að skila ekki sköttum og skyldum og standa í samkeppni við aðra sem sannarlega gera það. Ég verð að segja að þarna er mikið verk óunnið.
Það eru líka smærri atriði í fjáraukalagafrumvarpinu þar sem maður spyr sig: Voru þetta óvænt útgjöld? Samanber viðbótarkostnað vegna nýs Herjólfs upp á 790 milljónir. Voru það óvænt útgjöld? Kom þetta mönnum bara alveg í opna skjöldu? Það var búið að gera breytingar á skipinu meðan á smíðinni stóð. Maður spyr: Hvert er hlutverk varasjóða þegar svona tilvik koma upp?
Ég get nefnt annað dæmi: Erlend sjúkrahúsþjónusta, endurmat á útgjaldahorfum ársins upp á 410 millj. kr. Ég kann ekki tölu á því, herra forseti, hversu oft sá sem hér stendur hefur talað um að það sé algjör fásinna að senda fólk til útlanda í einfaldar aðgerðir sem kosta þar tvö og hálft til þrefalt meira en hægt er að fá þessar aðgerðir gerðar fyrir hér á Íslandi og borga fyrir það í beinhörðum gjaldeyri. Þetta er alger fásinna, herra forseti. Það eru 1.000 manns sem bíða eftir einföldum liðaðgerðum á Íslandi. Það tekur núna, held ég, tæpt ár að komast af biðlistanum til að komast inn á biðlistann. Fólk bíður upp undir eitt ár til að komast að hjá sérfræðingi sem kemur því fyrir inn á biðlista eftir aðgerð. Þá tekur við annað ár. Maður hefur orðið var við það síðustu misseri og þekkir til mjög margra sem hafa hreinlega gefist upp á þessu, sætta sig ekki við þetta, og þau hafa því sjálf lagt út 1.200.000 kr. á mann fyrir aðgerð sem er gerð uppi í Ármúla.
Við Miðflokksfólkið lögðum til við 2. umr. fjárlagafrumvarps, fyrir tveimur vikum eða hvenær það nú var, að 270 millj. kr. yrðu teknar og gerður yrði samningur við Klíníkina fyrir 270 milljónir. Þetta var fjármagnað að sjálfsögðu. Ég veit ekki hvort herra forseti man eftir því en þessi tillaga var felld að viðhöfðu nafnakalli. Hún var felld af hverjum einasta þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Og hverjir eru það, herra forseti, sem verða helst fyrir því að sitja eftir á biðlistum eftir liðskiptaaðgerðum? Jú, það eru þeir sem eiga ekki þessa milljón sem þarf til að komast að hjá t.d. Klíníkinni, innan lands. Þeir sem þangað geta ratað fara þangað. Því hefur hæstv. heilbrigðisráðherra tekist það á undraskömmum tíma sem engum heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins sem ég man eftir hefur tekist, þ.e. að búa til tvöfalt heilbrigðiskerfi á Íslandi. Þeir sem eiga fé aflögu geta nú keypt sig fram fyrir biðröðina og farið sjálfir í Klíníkina í Ármúla og borgað þær 1.200.000 kr. sem það kostar að fara í liðskiptaaðgerð þar. Það er áætlað að liðskiptaaðgerð á Landspítala Íslands kosti í kringum 1 milljón kr. Það hefur vissulega verið stigið skref til þess að gera aðgerðir á Akureyri, Akranesi og víðar. En auðvitað liggur það í hlutarins eðli, herra forseti, að á Landspítalann, sem er bráðasjúkrahús og háskólasjúkrahús og flaggskipið í heilbrigðisþjónustu, er búið að hlaða inn, á yfirkeyrt sjúkrahús og yfirkeyrt starfsfólk, verkefnum sem hægt er að vinna annars staðar, jafnvel á hagkvæmari hátt. En það er ekki hægt að grípa til þess vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur gengið í björg öfgavinstrisins í heilbrigðismálum á Íslandi. Á vakt Sjálfstæðisflokksins nú verða biðlistarnir enn þá þannig að 1.000 manns bíða eftir þessum einföldu aðgerðum vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki dug í sér til að berja það í gegn í ríkisstjórninni að þessar aðgerðir verði fluttar inn í landið aftur með þeirri fjölgun í aðgerðum sem það myndi hafa í för með sér. Það er peningasparandi fyrir ríkissjóð, eins og sést í þessari aukafjárveitingu upp á 410 milljónir. Og þetta er bara aukafjárveitingin. Það er búið að eyða meiru, herra forseti, í slíkar aðgerðir í fyrra vegna þess fólks sem hefur farið til Svíþjóðar í fyrra, þar hefur ákveðin upphæð verið tilgreind og hefur verið gengið á hana eins og hún nægði. Samkvæmt Evrópureglum getur hver sá sem hefur beðið í þrjá mánuði eða lengur eftir aðgerð farið fram á eða, réttara sagt, á rétt á því að fara í aðgerð í öðru landi innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þess vegna er þessi útgjaldaauki, vegna þess að fólk hefur ekki sætt sig við það að hafa beðið þrjá mánuði eða lengur og nýtir sér þann sjálfsagða rétt sem það hefur til að fara og fá þær aðgerðir framkvæmdar erlendis þótt dýrar séu.
Herra forseti. Bara þetta eitt og þau atriði sem ég hef tínt til eru sáraeinföld í sjálfu sér. Það væri alveg hægt að koma þessum hlutum öllum til miklu betri vegar ef farið hefði verið að skynsamlegum og fjármögnuðum tillögum Miðflokksins við fjárlög. Við skulum ekki gleyma því að þegar lög um opinber fjármál voru sett þá ætluðu menn sér að koma í veg fyrir það að fjáraukalagafrumvörp og fjáraukalög hvers árs væru af þeirri stærðargráðu sem þau voru áður en stjórn ríkisfjármála átti að batna með þessari lagasetningu. Það eru mjög mörg atriði í fjáraukalagafrumvarpinu sem benda einmitt til þess að það hafi ekki ræst. Ég bendi á 5,4 milljarða vegna dóms Landsréttar um ólögmæti afturvirkrar skerðingar á greiðslur til ellilífeyrisþega. Menn máttu segja sér það sjálfir að lög sem sett eru á Íslandi gilda ekki afturvirkt. Menn gátu sagt sér það sjálfir að þeir ættu von á því að menn myndu rísa upp og ekki una þessu óréttlæti, nákvæmlega eins og gert var. Eru þetta fjárútlát sem ekki mátti vænta? Alls ekki, herra forseti. Því miður eru flestir liðir í fjáraukalagafrumvarpinu þannig vaxnir að það hefði átt að vera hægt að koma í veg fyrir þá. Það er kannski það sem er vandræðalegast í þessu.