fjáraukalög 2019.
Herra forseti. Ég og hv. þingmaður erum nú komnir hættulega nálægt því sem kallast meðsvör og þykir ekki góð latína í þessum þingsal en það sleppur líklega af því að við erum hvor á sínum enda vogarstangarinnar. En auðvitað er það hárrétt sem kemur fram hjá hv. þingmanni og ég reifaði hér að í fyrsta lagi er meðferðin á opinberu fé ekki til fyrirmyndar hjá þessari ríkisstjórn. Og af því við vorum að tala um heilbrigðiskerfið og af því að við vorum að tala um Landspítalann, sem er náttúrlega flaggskipið í íslenskri heilbrigðisþjónustu og er búinn að vera með viðvarandi rekstrarvandræði alla vega síðustu sex, sjö ár, en það gerist eiginlega ekki neitt: Að okkar dómi ætti að setja neyðarstjórn yfir Landspítalann. Nú er búið að segja upp öllum fastlaunasamningum á Landspítalanum að því er virðist og maður veit ekki hvaða áhrif það hefur. Hefur það þau áhrif að fólk hrökklist frá vinnu þar og eykur enn á vanda sjúklinga sem eru náttúrlega viðskiptavinirnir í þessari jöfnu, ekki satt? Og af því að ég minntist áðan á að Sjálfstæðisflokkurinn sé genginn í björg öfgavinstrisins í heilbrigðismálum: Hverjir eru það, herra forseti, sem sitja eftir, t.d. við liðskiptaaðgerðir? Jú, það eru þeir sem ekki geta borgað sig inn á Klíníkina. Það eru þeir sem ekki þola að fara til Svíþjóðar á kostnað íslenska ríkisins. Það eru þeir sem eru veikastir fyrir, mest veikburða, þeir sem eru elstir og hafa minnst milli handanna. Það er þetta fólk sem öfgavinstrið í heilbrigðisráðuneytinu er núna að gera að skotspæni sínum, þetta eru þeir sem minnst mega sín, þeir sem eru elstir og eiga verst með að bera hönd fyrir höfuð sér, því miður. Ég hef sagt það hér áður: Þeir flokkar sem stjórna ríkisstjórninni, hvor á sínum ásnum, draga fram það versta í hvor öðrum, því miður.