150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[22:40]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur. Það væri fróðlegt að sjá niðurbrot á þessari 410 millj. kr. tölu um sjúkra- og heilbrigðiskostnað Íslendinga erlendis. En ég vil þó benda hv. þingmanni á að síðast þegar ég vissi hafði allt upp undir fjórðungur af því sem hefði átt að innheimtast af útlendingum fyrir heilbrigðisaðgerðir hér á Íslandi, smáar og stórar, bæði hjá Landspítalanum og hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og víðar, t.d. Suðurnesjum, ekki innheimst. Svo virðist sem ferðamönnum sé, eins og maður segir, sleppt út án þess að þeir borgi og sendur gíróseðill á eftir þeim og jafnvel að þeir séu að borga með kreditkorti sem þeir loka um leið og þeir eru komnir út fyrir gaflinn á heilsugæslustöðinni. Þetta er eitthvað sem við þurfum að grípa inn í. Þá segi ég aftur: Það er nauðsyn á því að menn séu með innheimtuna á kláru.

Þá ætla ég að nefna eitt atriði sem ekki er hér. Hv. þingmaður talaði um gæði áætlanagerðar. Í þessu fjáraukalagafrumvarpi er talað um að það vanti upp á tekjur ríkissjóðs miðað við áætlanir upp á 30 milljarða kr. Ég var nú að taka til áðan að það væru 80 milljarðar á sveimi í hagkerfinu. Það þarf náttúrlega meira en einhverjar 200 milljónir í mannskap til að reyna að laga þá tölu og við höfum lagt það til, eins og ég sagði, ótal oft. En það er eitt í viðbót sem ég myndi vilja nefna í þessu seinna andsvari og væri nú gott fyrir hv. þingmann sem er í fjárlaganefnd að gera, það er að koma böndum á það að útlendingar, þ.e. ferðamenn hér á Íslandi, eru að sleppa undan umferðarlagasektum, á alveg ótrúlega stórum skala, að miklu leyti, herra forseti. Ég kannast nú við það sem viðskiptavinur erlendra lögregluumdæma að þau elta mann hingað upp til Íslands og (Forseti hringir.) það eru bílaleigufyrirtæki sem eru milligönguaðilar í því. Ég spyr: Af hverju ekki hér? Hvað er að? (Forseti hringir.) Af hverju vinda menn sér ekki í það að leiðrétta þetta? Þetta er alþjóðlegt og ef þetta er hægt erlendis, af hverju er það ekki hægt hér? (Forseti hringir.) Þetta er verðugt verkefni fyrir hv. þingmann í fjárlaganefnd. (Gripið fram í.)

(Forseti (GBr): Ég bið hv. þingmenn að virða hin knöppu tímamörk og hvet jafnframt alla þingmenn til að vera stuttorða og gagnorða því að dagskráin sem við erum að glíma við er löng og það eru allmargir enn á mælendaskrá.)