fjáraukalög 2019.
Herra forseti. Ég þakka þingmanni fyrir spurningarnar. Þannig er háttað að frá því að við samþykktum lög um opinber fjármál hafa þrjár ríkisstjórnir á þessum fjórum árum unnið eftir þeim. Það er auðvitað ekki góð byrjun á stórum lagabálki sem á að breyta hegðun. Það er alltaf stórt átak að fara að breyta einhverjum hefðum og hegðun í stóru, þungu kerfi. En það var einmitt það sem lögunum var ætlað að gera. Það er margt gott í þeim lögum og ég vil ekki gefast upp á þeim strax. En það sem blasir við er að gagnsæið er ekki nægjanlegt. Gagnsæið þarf að vera meira og við þingmenn þurfum að vera meira með í ráðum eða vita meira um hvað við erum að samþykkja og í hvað nákvæmlega. Mér dettur í hug í því sambandi þegar við vorum að ræða fjáraukalögin fyrir ári síðan að þá var ég einmitt með tillögu um aukafjárveitingu fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja út af atburðum þar sem voru ekki fyrirséðir. Það var heilmikil umræða hér og í fjárlaganefnd og ráðuneytið kom og guð má vita hvað. Tillögur mínar voru felldar en rétt fyrir áramótin tæmdi hæstv. ráðherra einhverja óskipta liði (Forseti hringir.) sem gerðu sama gagn og þessar tillögur. Ef hæstv. ráðherra hefði bara komið í pontu og sagt: Ég er hér með óskipta liði, við munum (Forseti hringir.) redda þessu þannig, þá hefðum við sparað tíma og orku.