150. löggjafarþing — 44. fundur,  12. des. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[23:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2019 eins og margoft hefur komið fram í umræðunni. Stór hluti umræðunnar hefur snúist um það sem er svo sem gömul saga og ný í þessum efnum, að reyna að komast til botns í því og rökræða fram og til baka hvort einhver tiltekin útgjöld voru fyrirsjáanleg eða ekki. Báðir aðilar, báðar hliðar, hafa auðvitað nokkuð til síns máls hvað það varðar og ég ætla ekki að verja miklum tíma í að rökræða það eða setja fram skoðanir um hvaða þættir voru fyrirsjáanlegir og hvaða þættir voru það síður. Enda held ég að ríkisstjórn hverju sinni verði að hafa ákveðið svigrúm til að bregðast við þeim málum sem upp kunna að koma og hlutir geta verið ófyrirséðir, verkefni geti verið ófyrirséð og útgjöld geta verið ófyrirséð að hluta, þó að stóra myndin hafi legið fyrir í fjárlögum hverju sinni. Þannig að ég ætla ekki að eyða miklum tíma í að gagnrýna fjáraukalagafrumvarpið sem liggur fyrir heldur langar mig að fara meira í undirliggjandi lög um opinber fjármál og hvernig við getum vonandi horft til þess að bæta gagnsæi og gera okkur þingmönnum auðveldara að átta okkur á bæði nýtingu fjármuna og því hvernig heildarmyndin leggst. Það er auðvitað um verulega fjármuni að ræða sem annars vegar eru til afgreiðslu í frumvarpi til fjáraukalaga og síðan í hinum tveimur gerðum varasjóða sem hafa verið ræddir nokkuð hérna. Hv. þm. Oddný G. Harðardóttir sem var í ræðu á undan mér kom nokkuð inn á þá sem eru annars vegar svokallaðir varasjóðir málaflokks og síðan hinn varasjóðurinn sem er kallaður almennur varasjóður. Þegar fjárlög eru í laginu eins og raunin er eru verulegar upphæðir þar undir.

Það segir í 24. gr. laga um opinber fjármál, með yfirskriftinni Almennur varasjóður A-hluta, að varasjóður skuli nema að lágmarki 1% af fjárheimildum fjárlaga. Almennur varasjóður með 1% af fjárheimildum fjárlaga eru gríðarlegir fjármunir. Ég ætla að leyfa mér hér eins og ég hef gert áður að gagnrýna það hversu lítið gagnsæi er fyrir okkur þingmenn sem ekki erum fulltrúar í fjárlaganefnd. Maður verður bara að gefa sér að þær upplýsingar sem fulltrúar í fjárlaganefnd fá á fundum sínum útskýri þetta að nokkru leyti. En auðvitað á þetta að vera fylgirit eða viðauki við þau plögg sem hér liggja fyrir því að við verðum að geta horft á annars vegar frumvarp til fjáraukalaga og meðferð þessara varasjóða sem eina heild. Varasjóðirnir eru auðvitað miklum mun stærri en sú tala sem súmmerast upp í frumvarpi til fjáraukalaga sem liggur nú fyrir. Það er að mínu mati algjört lágmark að við þingmenn sem eigum þó að höndla með fjárveitingavaldið höfum betri heildaryfirsýn yfir þetta. Þetta eru stórar tölur, þetta eru peningar skattgreiðenda og við eigum að bera fyrir þeim tilhlýðilega virðingu. Með þessu er ég ekki að segja að ráðherrar séu að verja fjármunum úr varasjóðum í einhverja vitleysu, síður en svo. En við verðum að skoða þetta í samhengi. Við erum í þeirri stöðu að jafnvel núna segir á bls. 4 í nefndaráliti meiri hluta um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2019, með leyfi forseta:

„Við umfjöllun um frumvarp til fjáraukalaga og árshlutauppgjör ríkissjóðs innan ársins glímir nefndin enn við þann vanda að hafa ekki glöggt yfirlit um stöðu fjárheimilda einstakra málaflokka og notkun varasjóða. Framkvæmd við notkun varasjóða, og jafnvel einstakra safnliða þar sem þeir eru enn við lýði, er ekki enn markviss.“

Þetta er staðan í fjórða hring hvað meðferð fjárlaga og fjáraukalaga varðar eftir að lög um opinber fjármál voru sett. Ég ítreka að þetta er texti frá meiri hluta fjárlaganefndar. Aðgengi að upplýsingum verður vart mikið betra en hjá þeim hópi sem undir þetta plagg skrifar og undir þetta skrifa væntanlega venjubundið allir fulltrúar meiri hlutans í nefndinni. Og áfram heldur meiri hluti nefndarinnar og segir, með leyfi forseta: „Því er ekki fullkomlega ljóst hvort úrræði laga um opinber fjármál hafa verið fullnýtt.“

Ráðherrum og ríkisstjórn er uppálagt í lögum um opinber fjármál að nýta varasjóðina þannig að þeir komi á móti ófyrirséðum og óvæntum útgjöldum m.a., en í 34. gr. laga um opinber fjármál, undir yfirskriftinni Eftirlit með fjármálum innan fjárlagaárs, segir, með leyfi forseta:

„Hver ráðherra skal hafa reglubundið eftirlit með fjárhag ríkisaðila í A-hluta sem stjórnarmálefnasviði hans tilheyra og greina og bregðast við áhættu og veikleikum í rekstri. Ef hætta er á að útgjöld verði umfram fjárveitingar skal hann leita leiða til að lækka gjöld innan ársins, millifæra fjárveitingar innan málaflokka eða nýta varasjóði þannig að útgjöld verði ekki umfram fjárveitingar.“

Með þessari 34. gr. í lögum um opinber fjármál er ráðherrum hvers málaflokks uppálagt að þetta eftirlit sé stöðugt í gegnum árið og að menn grípi til varasjóðs sem einnar af þeim leiðum sem tiltækar eru og tækrar lausnar ef útgjöld eru að fara fram úr ramma. Þingheimur verður að reikna með því að eftirlitið með þessu sé stöðugt frá u.þ.b. öðrum fjórðungi hvers árs. Þar af leiðandi ætti að vera alveg sáraeinfalt að leggja þessar upplýsingar fram með þeim gögnum sem við höfum fyrir framan okkur í tengslum við fjáraukalögin af því að þau eru öll tilbúin fyrir löngu síðan. Allar þessar upplýsingar liggja fyrir og í því samhengi vil ég gagnrýna þetta verklag því að það er auðvitað ætlunin með lögum um opinber fjármál að gera ferlið allt saman gagnsærra, fyrirsjáanlegra og stöðugra. Það sem hefur algjörlega mistekist af þeim hluta er að hlutirnir verði gagnsærri. Það er mjög erfitt fyrir þingmenn, sérstaklega þá sem ekki eiga sæti í fjárlaganefnd, að hafa góða tilfinningu fyrir því hvernig undirliðir ráðuneyta eru að þróast hvað útgjaldahlutann varðar og alveg sérstaklega er erfitt að skynja í hvað varasjóðir, bæði almennur varasjóður og varasjóður hvers málaflokks, fara í. Þetta er hlutur sem ég vildi nefna í því samhengi. Og til að halda samhengi hlutanna þá er tilgreint í 19. gr. laga um opinber fjármál að varasjóður fyrir hvern málaflokk skuli nema að hámarki 2% af fjárheimildum málaflokksins. Í öllu falli er í þessum tveimur sjóðum, hinum almenna og þeim sem er tengdur málaflokkum, um að tefla gríðarlegar upphæðir.

Þá er lokið þessari gagnrýni minni á lög um opinber fjármál og hvernig þau eru framkvæmd í vinnu ríkisstjórnarinnar. Eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir kom inn á áðan er ríkisstjórnum vissulega nokkur vorkunn að hér hafi verið þrjár ríkisstjórnir sem hafa unnið undir þessu regluverki á þeim fjórum árum sem það hefur verið í gildi. Það breytir ekki því að stofnanaminni stjórnsýslunnar á að passa vel upp á þetta og það er nú þannig að í stóli fjármálaráðherra hefur í tveimur af þessum þremur ríkisstjórnum setið sami hæstv. ráðherrann.

Þá stíg ég frá þessum hluta ræðu minnar og ætla að fara í atriði er snúa að samgöngu- og fjarskiptamálum. Ég finn það ekki í fyrirliggjandi gögnum hvað um er að ræða en á bls. 59 í kafla 11.20 í sjálfu fjáraukalagafrumvarpinu þar sem fjallað er um fjarskipti eru lagðir til þrír liðir, þrjú verkefni. Það er í fyrsta lagi tillaga um að bæta við fjárveitingum í verkefni sem snúa að Póst- og fjarskiptastofnun, til stofnunarinnar sjálfrar. Síðan er tillaga vegna lagningar ljósleiðara á tveimur tilteknum svæðum. Það sem ég vildi gjarnan fá upplýsingar um er fjármögnun þessarar aðgerðar sem er í heildina með samanlagt um 106 milljónir. Hér segir að lagt sé til að óráðstöfuð fjárveiting vegna þjónustusamnings við Farice innan ársins verði nýtt til að fjármagna verkefnin. Er þetta áætlað upp á 106 millj. kr. Spurningin sem mig langar að skilja hér eftir, í samhengi við það að fá svar á milli umræðna, snýr að þjónustusamningi Farice. Hvað orsakar það að inneign, óráðstöfuð fjárveiting vegna þjónustusamnings, er til staðar upp á 106 millj. kr.? Var yfirskot í áætlunum eða er ekki verið að nýta einhverja þjónustu Farice sem er tilgreind í þjónustusamningi? Þjónustusamningar gefa ákveðinn ramma og fyrirsjáanleikinn til að mynda í þessu tilviki myndi ég halda að ætti að vera töluvert mikill. Þess vegna kemur á óvart að þarna sé vannýtt fjárheimild upp á 106 milljónir sem á að færa til annarra verkefna. Ég vil skilja þá spurningu eftir hér og óska svara við henni fyrir 3. umr. Ég óska atbeina forseta til að koma þeirri fyrirspurn áleiðis.

Ég ætla ekki að hafa þessi orð mikið fleiri í þessari ræðu minni. Ég ítreka bara að það er mikilvægt að taka lög um opinber fjármál sem nú eru að fara sinn fjórða hring til gagngerrar skoðunar, þingmenn og ráðherrar reyni að leggja mat á hvar vel hefur tekist til. Ég leyfi mér t.d. að fullyrða að fyrirsjáanleikinn sem í þessu regluverki felst er af hinu góða. En ég held á sama tíma að það ógagnsæi og aukna ráðherraræði sem virðist fylgja þessu regluverki laga um opinber fjármál, a.m.k. eins og þau hafa verið framkvæmd, sé af hinu illa. Gagnsæið hefur minnkað. Það er erfiðara fyrir þingmenn, sérstaklega þá sem ekki eiga sæti í fjárlaganefnd, að afla upplýsinga og það er erfiðara að fá heildarmynd yfir þau útgjöld sem koma til utan skilgreindra liða í fjárlagafrumvarpi þegar ekki er mögulegt að skoða fjáraukalög og varasjóðina tvo í samhengi.