tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég get alveg viðurkennt það hér að ég hefði frekar viljað sleppa því. Það er bara þannig. En þess vegna fór ég aðeins yfir það í ræðu minni hvernig væri hægt að horfa á þessar endurgreiðslur vegna kvikmynda- og sjónvarpsefnisgerðar. Ég er hér að vísa til þess að þetta sé í rauninni útflutningsvara og þar af leiðandi eðlilegt, eins og um aðrar útflutningsvörur, að ekki sé greiddur virðisaukaskattur. Ég átta mig á því að það hefur verið uppi svolítil gagnrýni á þessa aðferð og að ákveðnar atvinnugreinar séu teknar út og settar í ákveðið stuðningsumhverfi eins og á við um sjónvarps- og kvikmyndageirann. Það hefur verið gagnrýnt líka að með einhverjum hætti hafi þetta verið misnotað, veit ég. Ég held að það sé ástæðan fyrir því að hæstv. iðnaðar-, nýsköpunar- og ferðamálaráðherra lét gera úttekt á þessum málaflokki. Starfshópur var að störfum sem skilaði frá sér skýrslu og lagði til ákveðnar breytingar í því augnamiði að koma þessu á fastara form. Ég held að við þurfum að fylgjast mjög vel með því hvernig þetta er útfært.
Ég viðurkenni það bara fyrir hv. þingmanni — og þakka honum andsvarið — að ég hefði auðvitað gjarnan viljað sleppa því að skera niður þarna. Ég held að þetta sé mjög mikilvæg atvinnugrein. En mér finnst líka rosalega mikilvægt að þeim fjármunum sé vel varið sem við notum til fjárfestinga í þessum atriðum. Ég skildi þessar aðgerðir þannig að þarna væri verið að horfa til þeirrar niðurstöðu sem kom út úr starfshópnum sem var búinn að rýna þetta umhverfi og sá ákveðin tækifæri til hagræðingar. Ef ég skildi rétt bitnar þetta einna helst á sjónvarpsþáttagerð hér á Íslandi og það hefur verið gagnrýnt að sjónvarpsþættir geti bæði fengið styrki úr Kvikmyndasjóði og þessa endurgreiðslu. Einhverjir hafa bent á að það geti verið skörun þar að lútandi.