breyting á ýmsum lögum á sviði matvæla.
Virðulegi forseti. Ég leyfi mér að blanda mér aðeins í þessa umræðu um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði matvæla, áhugavert mál og gott. Ég get ekki annað, virðulegi forseti, en byrjað á því að bregðast aðeins við orðum hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem kom í sinni ágætu ræðu inn á það að Miðflokkurinn hefði bent á ákveðna hluti og ríkisstjórnarflokkarnir hefðu hrökklast til baka varðandi það að Matvælasjóður yrði að veruleika. Mér fannst svolítið vanta upp á í þeirri söguskýringu. Fyrst og fremst er staðan sú að með samlegð AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hefði hér orðið til virkilega góður sjóður, Matvælasjóður, sem hv. þm. Haraldur Benediktsson kom ágætlega inn á áðan. Staðan er einfaldlega sú að vegna tæknilegra ágalla á því að renna þessum sjóðum saman, framleiðnisjóði og AVS-sjóðnum, var það ekki hægt. Ég vil bara minna á það í þessum ræðustól að hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir var með fyrirvara á því nefndaráliti sem lá fyrir áður en þetta framhaldsnefndarálit kom fram, þannig að það sé sagt. Menn eru bara að vanda sig og ég á von á því að þegar verður búið að ganga frá samningum milli Bændasamtaka Íslands og ríkisvaldsins varðandi endurskoðun á rammasamningi verði þessi sjóður, Matvælasjóður, að veruleika. Hann er gríðarlega mikilvægur í því verkefni sem fram undan er varðandi matvælavinnslu, hvort sem er til lands eða sjávar.
Það er komið inn á ýmsa góða þætti frumvarpsins í nefndarálitinu og mig langar að staldra við það sem snertir heimaslátrun. Við höfum verið í töluverðum vandræðum með þennan þátt, heimavinnslu afurða. Það hefur tíðkast að menn hafa farið með sínar afurðir í opinber sláturhús, afurðastöðvar, tekið gripina heim og unnið þá heima eftir ákveðnu regluverki og það hefur gengið ágætlega. Ég er talsmaður þess ásamt mörgum öðrum að við þurfum að endurskoða þetta, gera mönnum það einfaldara að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á vöruna til lengri tíma. Við getum séð fyrir okkur hvort sem er örsláturhús eða færanleg sláturhús. Það fylgir þessu ákveðið eftirlitsregluverk. Það má læra margt af því sem gerist í fyrirheitna landinu, Evrópusambandinu. Til dæmis hefur komið fram í máli þeirra sem um þetta mál hafa fjallað að veitt er ákveðin undanþáguheimild, að mér skilst, í Evrópusambandinu varðandi veiðar á villisvínum. Ég man ekki betur en að árlega séu veidd t.d. í Þýskalandi ein 400.000 villisvín. Þar sækja menn einfaldlega námskeið þar sem þeir læra hvernig eigi að umgangast sláturdýr á því frumstigi sem er óhjákvæmilega eftir slátrun og hvernig sú meðhöndlun eigi að vera.
Ég sé það fyrir mér að þetta eigi alveg að vera möguleiki hér. Vissulega þurfum við að þróa okkur í þessum málum en hér felast mikil tækifæri fyrir heimavinnslu afurða og fyrir ferðaþjónustu í landinu. Þetta er atvinnuskapandi og hvort sem þetta á eingöngu við um sauðfé eða ekki þá vil ég útvíkka þetta töluvert og ég held að það sé mjög skynsamlegt ef við horfum bara á alla þá framleiðslu sem hér er um rætt. Við getum talað um svín, naut og jafnvel kjúklinga í því samhengi. Fyrst og fremst held ég að það sé þessi þáttur sem við þurfum að reyna að stíga yfir, reyna að finna leiðir. Öll þekkjum við það mál sem er fyrir dómstólum núna, held ég, mál Sveins Margeirssonar, sem er mjög athyglisvert og verður gaman að fylgjast með framvindu þess. Ég held að við eigum öll að sameinast um það, í framhaldi af því þegar því máli lýkur, að einfalda regluverk hvað þetta varðar og reyna að gera mönnum kleift að stunda þessa vinnslu. Flest okkar sem erum úr sveit höfum væntanlega einhvern tímann bragðað kjöt af heimaslátruðu og ekki orðið meint af. Nú sé ég að hv. þm. Haraldur Benediktsson glottir við. Ég er ekki með þessum orðum að tala um að menn eigi að gefa einhvern afslátt á heilbrigðiskröfum eða þess háttar. En vissulega er það alltaf þannig að þegar menn tala um velferð dýra hlýtur það alltaf að vera mesta velferðin að það séu sem minnstar breytingar fyrir skepnuna úr haga í maga, eins og maður segir, minnsta inngripið.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar en ég vil leggja áherslu á það að ég vona að Matvælasjóður verði að veruleika og stjórnvöld, þ.e. hæstv. ráðherra Kristján Þór Júlíusson, fari nú í það verkefni að endurskoða rammasamninginn sem inniheldur framleiðnisjóð þannig að við getum komið Matvælasjóði á, því að hann er einn af þeim mikilvægu 17 liðum sem við samþykktum síðastliðið vor, að mig minnir 54 þingmenn samhljóða, í þeirri aðgerðaáætlun sem fjallaði um breytingar á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, svokallað hráakjötsmál. Ég skora á okkur í þessu húsi að fylgja því vel eftir.