fjáraukalög 2019.
Herra forseti. Ég tek fram að hér talar gamall fjármálaráðherra úr fortíðinni en ekki núverandi forseti Alþingis. Ég vil segja fyrir mitt leyti að þetta eru fullkomlega eðlileg fjáraukalög með tilliti til þess að við erum að takast á við tiltölulega snögga hagsveiflubreytingu, þ.e. að fara úr miklum árlegum hagvexti niður í hægagang, sem betur fer ekki samdrátt en hægagang í hagkerfinu. Þá gerast þeir hlutir að tekjurnar falla og útgjöldin aukast, t.d. í gegnum aukið atvinnuleysi. Þar af leiðandi endurspegla að mínu mati bæði fjáraukalagafrumvarpið og fjárlög næsta árs, til viðbótar við það að eiga sér eðlilegar skýringar, mjög skynsamleg viðbrögð við þessari hagsveiflubreytingu, þ.e. að beita ríkisfjármálunum til að vinna á móti hagsveiflunni og milda hana fyrir hagkerfið og samfélagið. Sem Keynisti verð ég að segja að ég er alveg sérstaklega ánægður með þessi viðbrögð og tel þau hárrétt. Það er ekki ábyrgðarleysi (Forseti hringir.) að þora að beita ríkisfjármálum eins og á að beita þeim við aðstæður eins og þessar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)