fjáraukalög 2019.
Virðulegur forseti. Eins og ítrekað hefur verið sagt er ekkert óvænt, ófyrirséð eða tímabundið við þessa tilhögun hérna. Það hefur komið fram að skerðingu sem kom í hruninu til þessara mála hafi verið haldið eftir til að auka samningsstöðu ríkisins eitthvað meira til að geta gert framtíðarsamninga á einhvern annan hátt. Ég veit þá ekki af hverju þetta er hérna ef þetta er ekki ófyrirséð eða neitt svoleiðis, ef það var virkilega einhver önnur upphæð sem átti að vera þarna til að standa við samninga. Miðað við það er upphæðin þarna upp á rúman 1 milljarð ótæk inn í fjáraukalagafrumvarp. Ef þetta átti að gera samningsstöðu ríkisins eitthvað betri gagnvart kirkjunni sé ég ekki að það hafi tekist mjög vel miðað við viðbótarsamkomulagið sem við höfum verið að ræða hérna undanfarna daga.