150. löggjafarþing — 46. fundur, 16. des. 2019.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, og á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, báðar frá Ólafi Ísleifssyni.