150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

319. mál
[10:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta eru málaflokkar sem eru hjá ráðuneytinu, Mannvirkjastofnun kom frá umhverfisráðuneytinu á síðasta ári eða snemma á þessu ári. Ég geri ráð fyrir að haldið verði utan um þau með þeim hætti sem lög og reglur kveða á um því að þetta er náttúrlega stór málaflokkur og skiptir miklu máli. Húsnæðismálin voru fyrir hjá ráðuneytinu þannig að ég geri ráð fyrir að haldið verði utan þau með þeim hætti sem best verður á kosið.