Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hluta velferðarnefndar með breytingartillögu um frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Minni hlutinn gagnrýnir harðlega þau vinnubrögð ríkisstjórnarinnar sem viðhöfð voru við framlagningu málsins. Frumvarpsdrög voru birt í samráðsgátt stjórnvalda þann 15. júlí 2019 og lauk umsagnarfresti þar 13. ágúst 2019. Sjö umsagnir bárust um málið en frumvarpið ber það ekki með sér að tillit hafi verið tekið til þeirra umsagna. Þrátt fyrir framangreint var ekki mælt fyrir frumvarpinu fyrr en 11. nóvember.
Fjöldi umsagna barst nefndinni, en formlegu umsagnarferli nefndarinnar lauk 5. desember. Því hafði nefndin ekki tök á því að bregðast með fullnægjandi hætti við öllum umsögnum og kalla alla þá aðila fyrir nefndina sem tilefni var til. Telur minni hlutinn jafnframt að meiri hluti nefndarinnar hafi við afgreiðslu málsins ekki tekið með fullnægjandi hætti tillit til faglegra umsagna sem bárust nefndinni um veigamikil atriði.
Í umsögn Seðlabanka Íslands var lögð til orðalagsbreyting á 3. málslið 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins. Í umsögninni segir að orðalag ákvæðisins um aðgang almennings að húsnæði „óháð efnahag“ virðist óþarflega opið og megi skilja það sem svo, með leyfi forseta, að „greiðslugeta lántaka eigi ekki að skipta máli við ákvörðun um lánveitingu“ sem Húsnæðissjóður veitir. Tekur minni hlutinn undir þá athugasemd og leggur til breytingu í samræmi við ábendingu Seðlabanka Íslands þannig að í stað orðanna „óháð efnahag og búsetu“ í 3. málslið 1. mgr. 2. gr. komi: með tilliti til efnahags og búsetu.
Að mati minni hlutans var við samningu frumvarpsins horft of mikið á húsnæðishluta hinnar nýju stofnunar og ber greinargerðin þess merki að sú áhersla hafi verið á kostnað starfs Mannvirkjastofnunar, sem felst m.a. í eftirliti með brunavörnum og rafmagnseftirliti. Meðal annars komu fram áhyggjur af hlutverki Brunamálaskólans þar sem skorti framtíðarsýn, prófin væru úrelt og nám við skólann ekki metið inn í viðurkennt kerfi. Þá væru þeir fjármunir sem greiddir væru í bygginga- og öryggisgjald ekki að skila sér í starfsemi stofnunarinnar. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Verkfræðingafélag Íslands og Samorka bentu öll á að hætta yrði á að mikilvægi öryggisþáttarins yrði ekki gert nægilega hátt undir höfði. Tekur minni hlutinn undir þessi sjónarmið og telur þessar athugasemdir kalla á ítarlegri umfjöllun.
Þá bendir minni hlutinn á að ákvæði 15. gr. um rafræna byggingagátt veki ýmsar spurningar. Hvorki er mælt fyrir um eignarhald gáttarinnar í frumvarpinu né í nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar. Því er ekki heldur svarað með skýrum hætti hvort ríki og sveitarfélög muni þurfa að greiða fyrir aðgang að hinni rafrænu gátt. Í greinargerð frumvarpsins segir um gjaldtökuheimild stofnunarinnar í 15. gr. að ekki sé gert ráð fyrir því að þjónustugjöld verði innheimt fyrir þau verkefni sem snúa að samræmingar- og samstarfshlutverki stofnunarinnar gagnvart sveitarfélögum. Slík skýring á sér þó ekki fullnægjandi stoð í gjaldtökuheimildinni sjálfri, sem veldur vafa um það hvort ríki og sveitarfélög muni þurfa að greiða fyrir aðgang að hinni rafrænu gátt. Með hliðsjón af þeim athugasemdum leggur nefndin til breytingu þess efnis að stofnunin skuli starfrækja gagnasafn í samræmi við ákvæði laga um mannvirki.
Allur minni hluti velferðarnefndar styður nefndarálitið og þær breytingartillögur sem lagðar eru fram og hefur áður verið farið yfir, þ.e. að í stað orðanna „óháð efnahag og búsetu“ í 3. málslið 1. mgr. 2. gr. komi: með tilliti til efnahags og búsetu. Í öðru lagi leggur minni hlutinn til að 2. málsliður 15. gr. orðist svo: Einnig skal stofnunin starfrækja gagnasafn í samræmi við ákvæði laga um mannvirki.
Þeir sem skrifa undir nefndarálitið eru sú sem hér stendur, formaður velferðarnefndar, Anna Kolbrún Árnadóttir, Halldóra Mogensen, Guðmundur Ingi Kristinsson. Hanna Katrín Friðriksson sem er áheyrnarfulltrúi í nefndinni er samþykk áliti þessu.
Mig langar að fara dýpra ofan í þær athugasemdir sem minni hlutinn tekur sérstaklega fram þó að vissulega hafi fjölmörg önnur atriði komið fram við meðferð málsins í nefndinni. Í fyrsta lagi varðandi umsögn Seðlabankans verður að taka undir þær áhyggjur þegar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er í rauninni falið það hlutverk að greiða leið almennings að húsnæði óháð efnahag. Um er að ræða stofnun sem á að annast lánveitingu og ef greiðslugeta lántaka á ekki að skipta máli við ákvörðun um lánveitingar Húsnæðisjóðs erum við auðvitað komin út í eitthvert ástand sem ég held að við ráðum ekkert við. Það verður að vera alveg skýr heimild Húsnæðisjóðs til þess að kalla eftir upplýsingum um greiðslugetu lántaka. Þegar löggjafinn hefur hins vegar tekið ákvörðun um að setja í lög að veita eigi aðgang að húsnæði óháð efnahag er um leið kominn fram réttur einstaklinga til lántöku óháð efnahag. Og hvernig sjá stjórnvöld og meiri hluti hv. velferðarnefndar fyrir sér að neita einstaklingi um lán þegar svona skýr fyrirmæli eru í lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun? Þessi fyrirmæli eru að óháð efnahag eigi viðkomandi að fá fyrirgreiðslu eða alla vega möguleika á láni. Það er hvergi tekið fyrir þennan möguleika og ekkert um þetta fjallað.
Þetta benti Seðlabanki Íslands vissulega á og leggjum við í minni hlutanum til að það verði tekið til greina við afgreiðslu málsins hér síðar í dag eða á morgun, enda leggjum við fram breytingartillögu algerlega í samræmi við það sem kemur fram í umsögn Seðlabanka Íslands. Þegar Seðlabanki Íslands kemur með ábendingar af þessu tagi er í hæsta máta óábyrgt að taka ekki tillit til þeirra. Það er alveg ljóst hvað er á ferðinni. Það búa engin annarleg sjónarmið að baki hjá Seðlabanka Íslands. Það að nefndin hafi ekki haft tækifæri til þess að vinna þetta með fullnægjandi hætti vegna tímaskorts getur valdið miklu tjóni og við höfum séð það og erum heldur betur að súpa seyðið af því, ríkissjóður, með tæpa 6 milljarða núna á þessu ári sem þarf að greiða út vegna mistaka við lagasetningu í þingsal Alþingis. Það er alvarlegt. Það er alvarlegt þegar Alþingi Íslendinga fær ekki nægan tíma til að vinna jafn umfangsmikil mál eins og þetta er. Það er ekki bara verið að skella saman tveimur stofnunum.
Hinn þátturinn sem ég vildi koma inn á er öryggis- og eftirlitsþátturinn. Það kom skýrt fram í máli fulltrúa Mannvirkjastofnunar fyrir nefndinni að þeim þótti samráðið í rauninni ekki vera fullnægjandi. Þó að það hefði verið einhver nefnd að störfum og þess háttar þá þótti þeim eins og stefnan væri mjög einhliða. Það var bara búið að ákveða þetta og stofnunin skyldi fara að aðlaga sig að því — og hafa þau verið að gera það því að þau áttuðu sig á því snemma, eins og kom fram, að það var illfært að snúa til baka. En ekki bara það heldur er líka óþægilegt að sjá t.d. í umsögn Íbúðalánasjóðs um málið talda upp átta töluliði um hver séu markmiðin með þessari stofnun, með sameiningu þessara tveggja stofnanna, og enginn af þessum töluliðum, engin af þessum athugasemdum á við um tvo þriðju hluta starfsemi Mannvirkjastofnunar. Það virðist vera áherslan hjá þeim sem hafa verið helst að keyra áfram þessa sameiningu, sem ég er í eðli mínu ekkert ósammála að kunni að vera hagkvæm og sniðug og allt það, en það eru vinnubrögðin sem ég hef áhyggjur af. Tveir þriðju hlutar starfsemi Mannvirkjastofnunar virðast lenda einhvers staðar ofan í skúffu, falla á milli skips og bryggju. Það er ekki tekið nógu mikið tillit til öryggisþáttarins, brunavarna, eftirlitsþátta o.s.frv. Það er byggingarþátturinn sem verður út undan þegar kemur að húsnæðismálunum. Byggingarþátturinn verður olnbogabarn. Sá þáttur var orðinn það áður, við flutninginn yfir, því að það kom líka fram hjá fulltrúum félagsmálaráðuneytis að ekki eitt einasta stöðugildi úr umhverfis- og auðlindaráðuneyti kom yfir í félags- og félagsmálaráðuneytið við flutning á húsnæðismálunum fyrr á árinu, ekki eitt einasta stöðugildi, heldur átti það starfsfólk sem þar var fyrir að hlaða á sig fleiri verkefnum. Þetta eru engin smáræðisverkefni.
Þá veltir maður fyrir sér hvernig sér hvernig ráðherra sjái fyrir sér að þetta verði. Hvernig sér meiri hlutinn fyrir sér að það starfsfólk sem kemur bugað af vinnuálagi fyrir nefndina að kynna hvert málið á fætur öðru — og þegar við spyrjum þau hvernig gangi segja þau einfaldlega að þau hlaupi og hlaupi — og hvernig sjá stjórnvöld og ráðherra fyrir sér að þetta ráðuneyti eigi að geta haldið utan um þennan gríðarlega stóra og mikilvæga málaflokk svo vel sé, án þess að það verði gerð stór mistök? Því að ég hef áhyggjur af því að við séum að gera ákveðin mistök með þessu og að við verðum svo næstu árin að leiðrétta og lagfæra eftir að komið er út í ógöngur. Mér finnast það ekki, herra forseti, sérstaklega góð vinnubrögð og þess vegna get ég ekki tekið undir það þegar meiri hluti nefndarinnar afgreiðir þetta með þessum hætti.
Minni hluti velferðarnefndar leggur til þær breytingar sem áður hafa verið kynntar og vonar bara að meiri hluti þings sjái sólina þegar kemur að þeim.