150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

319. mál
[11:23]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur fyrir framsöguna. Mig langar að koma inn á nokkur atriði. Það eru í fyrsta lagi þær breytingartillögur sem minni hlutinn gerir. Mér þykir breytingin sem minni hlutinn gerir varðandi 3. málslið 1. mgr. 2. gr. býsna mikil þrenging og ég get ekki sagt að ég deili að öllu leyti þeim áhyggjum sem bæði koma fram í áliti Seðlabankans og eins þeim sem fram koma í máli þingmannsins. Sé greinin öll lesin þá stendur: „Stofnunin skal stuðla að því að jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði“ o.s.frv. og: „Einnig skal stefnt að því að …“ Þetta eru sem sagt ekki fortakslaus ákvæði. Hins vegar með því að þrengja þetta niður í það, eins og gert er í minnihlutaálitinu, að í staðinn fyrir að segja „óháð efnahag og búsetu“ yfir í að segja „með tilliti til efnahags og búsetu“, er í rauninni verið að samþykkja það að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun geti hreinlega sagt nei vegna þess að: Ja, nei, þú átt heima einhvers staðar annars staðar en á þessum heitari svæðum, þú átt heima á köldu svæði og við þurfum ekkert að lána þér og ekkert að taka tillit til þín. Ég sé ekki að það sé að neinu leyti betri kostur þegar horft er á greinina í heild vegna þess að greinin er í heild með tveimur, ef ekki þremur, fyrirvörum um endanleg hlutverk. Þess vegna er kannski óþarfi að hafa áhyggjur af þessu ákvæði.