Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er ósammála honum um að verið sé að þrengja of mikið því að um er að ræða lánastofnun og þess vegna tek ég undir það sem kemur fram í umsögn Seðlabanka Íslands sem segir jafnframt að í greinargerð með frumvarpinu komi fram að í félagsmálaráðuneytinu séu í undirbúningi „enn frekari breytingar á ákvæðum laga um húsnæðismál sem fjalla eiga um lánveitingar [...] en gert er ráð fyrir að í því frumvarpi verði mælt fyrir um heimild ráðherra til að setja viðmið vegna lánveitinga í reglugerð“. Einmitt þess vegna telur Seðlabanki Íslands, og minni hlutinn tekur undir þetta, að „æskilegt sé að lagaramminn um markmið og hlutverk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar sé nægilega skýr til þess að lagastoð vegna reglugerða sem stefnt er að setja síðar“ verði nægilega styrk.
Þetta er frumvarp um lánastofnun. Það er gríðarlega mikilvægt að vandað sé vel til verka. Þetta er ekki eins og einhver stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar um alhliða eitthvað. Þetta er lagafrumvarp um lánastofnun og þess vegna skiptir máli að þetta sé nákvæmt til að forðast það sem ég kallaði áðan tjón, forðast það að upp rísi dómsmál þar sem hinn almenni borgari ætlar að krefjast þess að eiga sinn rétt samkvæmt orðanna hljóðan í lögum.