150. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2019.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

319. mál
[11:38]
Horfa

Frsm. minni hluta velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og heyri hvert hún er að leiða umræðuna — í þá átt að formaðurinn hafi ekki sinnt sínu starfi þegar hún vann þetta mál í hv. velferðarnefnd. Þá er rétt að benda á að þegar mál kemur til vinnslu í nefndinni er alla jafna reynt að bíða eftir umsögnum áður en farið er í að kalla inn umsagnaraðila. Það var ekki svo í þessu máli því að það gafst enginn tími til þess, heldur hóf nefndin strax að kalla inn hagaðila þá sem mögulega var vitað að gætu haft eitthvað um málið að segja, þ.e. ráðuneytið til að kynna málið og svo fulltrúa þeirra stofnana sem nú er verið að slá saman í eina.

Það er rétt að benda hv. þingmanni á að í samráðsgátt stjórnvalda bárust sjö umsagnir með þessu máli en til þingsins voru umsagnirnar, held ég, 30. Það er töluvert mikill munur á því. Þegar umsagnarfrestinum lýkur 5. desember, sem er fyrir rúmri viku, er alveg ljóst, þegar líður að síðustu viku þings, þar sem nefndarfundir voru í síðustu viku, að ekki er tími til að kalla inn alla þá sem skila inn umsögnum í þessu máli. Það var alveg þannig. Og vegna þess að það komu inn slíkar umsagnir alveg á lokametrunum hefði verið betra fyrir málið sjálft, fyrir fagmennsku Alþingis Íslendinga, að vinna málið lengur. Það er bara þannig. Þetta eru ekki vinnubrögð sem við eigum að bjóða upp á, hvorki starfsfólki stofnananna né almenningi.